Lífið

Willum Þór setur pókermótið

Freyr Bjarnason skrifar
Willum Þór Þórsson setur pókermótið í dag.
Willum Þór Þórsson setur pókermótið í dag. Vísir/Getty, Vísir/Daníel
Alþingismaðurinn Willum Þór Þórsson mun setja pókermótið Stórbokka á Grand hóteli í dag.

Willum Þór var einn þeirra sem lögðu fram frumvarp um að heimila starfsemi spilahalla á Íslandi og er hann því í miklum metum á meðal íslenskra pókerspilara.

Sökum mikillar þátttöku í pókermótinu í dag, þar sem 115 þúsund krónur kostar inn, hefur Pókersamband Íslands ákveðið að Stórbokki verði árlegur viðburður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×