Jákvæð viðbrögð frá Rihönnu Gunnar Leó Pálsson skrifar 7. febrúar 2015 09:30 María Ólafsdóttir er ánægð með samstarfið við StopWaitGo. Vísir/Solla Matt „
Við höfum notað röddina hennar Maríu til að selja lög úti og höfum fengið mjög jákvæð viðbrögð, meðal annars úr herbúðum stórra söngkvenna eins og Jessie J og Rihönnu,“ segir Ásgeir Orri Ásgeirsson, meðlimur í íslenska upptökuteyminu StopWaitGo. Teymið á lag í undankeppni í Eurovision en söngkonan María Ólafsdóttir syngur lagið, Lítil skref. Samstarf þeirra nær þó til ársins 2012 og hefur rödd Maríu hjálpað teyminu mikið í að selja sitt efni til erlendra listamanna. Ásgeir segir að það ferli sem fylgi því að selja lög til þekktra nafna erlendis sé langt og flókið. „Lögin eru send á umboðsskrifstofur og þaðan á umboðsmenn sem eru að að leita að lögum fyrir sína listamenn. Lögin fara svo í gegnum umboðsmenn en ef þeir fíla lagið þá hlusta stjörnurnar á það og við vitum allavega að eitt lagið okkar fór langt í þessu ferli og átti möguleika á að lenda á plötu hjá Rihönnu.“Hér er StopWaitGo og María Ólafs að taka upp í London.María kann vel við samstarfið við strákana. „Það er að sjálfsögðu mikill heiður, ótrúlega gaman og skrítið um leið að vita af því að þekktir erlendir listamenn séu að hlusta á mig syngja. Af því ég er að syngja inn lögin fyrir aðra listamenn, þarf ég að vera tilbúin að setja mig í alls konar karaktera og það hefur ef eitthvað er aukið fjölbreytileika minn í söng,“ segir María. Breska stúlknasveitin The Saturdays hefur sýnt nýju lagi sem María syngur áhuga en fyrir skömmu gerði lag teymisins, Disco Love, það gott í Bretlandi í flutningi The Saturdays. „Einu sinni var líka flogið sérstaklega til London með Maríu til þess að syngja inn bakraddir fyrir söngkonuna Bleonu, sem hefur meðal annars unnið með Timbaland,“ segir Ásgeir. „Bleona var svo hrifin af rödd Maríu, sem söng demóið, að hún gat ekki hugsað sér að klára lagið án þess að fá hana í bakraddir og var henni flogið til London samdægurs.“
Mest lesið „Ekki þurrt auga í salnum“ Lífið Þurfti að missa þáttinn til að átta sig á næsta skrefi Lífið Man ekki eftir öðru eins: Aldrei séð jafn marga falla í yfirlið yfir einni mynd Bíó og sjónvarp Nærfatamódelin sneru aftur eftir sex ára hlé Tíska og hönnun Þjóðhátíðarstemning á árshátíð Sýnar Lífið Elskar að vera á níræðisaldri og eiga ungbarn Lífið Lén skráð á laugardag ekki framboðslén Lífið „Bullandi stífir í því að halda uppi þessu afneitunarhagkerfi sem við búum í“ Lífið Lá beinast við að gera mynd um Laugavegshlaupið Bíó og sjónvarp „Lífsstíllinn er að drepa okkur“ Lífið Fleiri fréttir Elskar að vera á níræðisaldri og eiga ungbarn Þurfti að missa þáttinn til að átta sig á næsta skrefi Kveiktu í dansgólfinu í Iðnó „Bullandi stífir í því að halda uppi þessu afneitunarhagkerfi sem við búum í“ „Ekki þurrt auga í salnum“ Krúttlegasti innbrotsþjófur landsins Lén skráð á laugardag ekki framboðslén Verður þér skipt út fyrir kynlífstæki? Þjóðhátíðarstemning á árshátíð Sýnar Orðið það sama og þekkt fataverslun í miðbæ Reykjavíkur Hlutverkið það erfiðasta hingað til Glamúr og glæsileiki í opnun hjá Lovísu DIMMA var flott en einhæf Almenningur um stjórnarslit: „Þetta var komið út í smá rugl“ Sjarmerandi íbúð listafólks í miðbænum Pískur sem þróaðist í hættulegustu samsæriskenningu síðari tíma Sungu bakraddir fyrir Heru og eru nú byrjuð saman Fylgdist með Pétri Jóhanni byggja útieldhús Dóttir Ingós og Alexöndru komin með nafn „Lífsstíllinn er að drepa okkur“ Stjörnulífið: Kóngar, drottningar og stjörnur í útlöndum Ótrúleg tilviljun er Stefán brenndi fánann Hvað eru plötusnúðarnir að hlusta á? „Ég nenni ekkert að hafa eitthvað að sanna“ „Leiðangurinn verður kvennaleiðangur að öllu leyti“ Krakkatían: Óveður, flugvélar og kirkjur Hlaupa Bleiku slaufuna í sólarhring Mary drottning hafi undrast umræðu um brúna skó Björns Laufey á lista yfir áhrifamestu áhrifavaldana Fékk ekki atvinnuviðtöl vegna kínverska nafnsins Sjá meira