Erlent

Minsk staður friðarfundar

jóhann óli eiðsson skrifar
Petro Porosjenkó, Angela Merkel og Joe Biden.
Petro Porosjenkó, Angela Merkel og Joe Biden. fréttablaðið/ap
Leiðtogar Úkraínu, Rússlands, Frakklands og Þýskalands munu hittast á fundi í Minsk, höfuðborg Hvíta-Rússlands, næstkomandi miðvikudag. Engan þarf að undra að umræðuefnið verður ástandið í austurhluta Úkraínu.

Fundurinn var ákveðinn í kjölfar þess að fjórmenningarnir ræddu saman í síma í gær. Petro Porosjenkó, forseti Úkraínu, sagði eftir símafundinn að hann vonaðist til þess að vopnahléi yrði komið á sem fyrst. Angela Merkel og Francois Hollande höfðu tveimur dögum áður ferðast til Moskvu og rætt við Vladimír Pútín um ástandið án þess að komast að niðurstöðu.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem fundað verður um málefni stríðandi fylkinga í Minsk. Í september í fyrra undirrituðu aðilar samkomulag um vopnahlé, skipti á föngum, aukna sjálfstjórn héraðanna Dónetsk og Lúhansk og að kosningum þar yrði flýtt. Þrátt fyrir vopnahléið héldu menn áfram að skjóta hverjir á aðra og kenndu hverjir öðrum um.

Sem stendur geisa harðir bardagar kringum lestarstöðina í Debaltseve. Rúmlega 5.300 manns hafa fallið í bardögum síðan í apríl á síðasta ári og látnum fjölgar dag frá degi.

Leiðtogar fjölmargra ríkja, en þó ekki Rússlands, funduðu um helgina í München. Aðspurð sagði Angela Merkel að mikilvægt væri að leita allra leiða til að koma í veg fyrir að deilan yrði útkljáð með vopnum. Sú yfirlýsing vakti upp blendnar tilfinningar vestan hafs.

„Úkraínumenn eru að falla fyrir rússneskum byssukúlum og við sendum þeim mat og teppi. Matur og teppi veita litla vörn gegn skriðdrekum,“ segir öldungadeildarþingmaðurinn og repúblikaninn John McCain. Utanríkisráðherrann John Kerry segir að ekki standi til að Bandaríkin sendi hermenn eða hergögn til landsins.

Enn hafa ekki borist neinar fregnir af innihaldi mögulegs samkomulags en getgátur eru uppi um að núverandi víglína verði hlutlaust svæði. Í fyrra Minsk-samkomulaginu var gert ráð fyrir því að báðar fylkingar myndu draga vígvélar sínar aftur um fimmtán kílómetra en heimildir herma að ætlunin sé að gera fimmtíu kílómetra breitt svæði algerlega vopnalaust.

Þjóðarleiðtogarnir fjórir munu ekki vera einu aðilarnir sem koma til með að funda í Minsk að tveimur dögum liðnum. Fulltrúar uppreisnarmanna, Úkraínu, Rússlands og Öryggis- og eftirlitsstofnunar Evrópu munu einnig hittast og ræða málin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×