Fá lengri tíma með börnum eftir andlát Andri Ólafsson skrifar 9. febrúar 2015 09:00 Þórunn Pálsdóttir (t.v.) og Anna Lísa Björnsdóttir (t.h.) frá styrktarfélaginu Gleym mér ei taka kælivögguna og athuga búnaðinn sem fylgir kælivöggunni. Helga Sigurðardóttir, yfirljósmóðir meðgöngu- og sængurlegudeildar, fylgist með. Fréttablaðið/Ernir „
Við erum að gefa fólki tíma,“ segir Anna Lísa Björnsdóttir, félagi í styrktarfélaginu Gleym mér ei, um kælivöggu sem félagið afhenti Landspítalanum í síðustu viku. Félagið styrkir ýmis verkefni í tengslum við missi barns á meðgöngu eða í fæðingu. Kælivaggan gefur foreldrum barna sem hafa látist við fæðingu meiri tíma til að vera með barninu. Vaggan heldur líkama barnsins hæfilega köldu og því geta foreldrar haft barnið hjá sér í allt að tvo sólarhringa, í stað örfárra klukkutíma eins og áður. Að sögn Önnu Lísu, sem tók þátt í að safna fyrir vöggunni, er þetta afar mikilvægt fyrir foreldra á þessum viðkvæma tíma. „Þetta er algjör bylting,“ segir Anna. Hún útskýrir að hingað til hafi foreldrar haft afar lítinn tíma til að kveðja. Það sé mikilvægt í sorgarferlinu að leyfa sér og nánustu aðstandendum að skapa minningar. Með tilkomu kælivöggunnar sé það nú mögulegt. Sumir foreldrar vilja baða barnið sitt. Aðrir vilja klæða það. Enn aðrir vilja leyfa systkinum að kveðja. Allt eru þetta mikilvægir þættir, að sögn Önnu, í því ferli sem barnsmissir hefur í för með sér. Styrkjarfélagið gefur tvær kælivöggur. Ein verður á sjúkrahúsinu á Akureyri og hin verður hluti af búnaði Kristínarherbergisins á kvennadeildinni við Hringbraut í Reykjavík, sem nefnt er eftir Kristínu Guðmundsdóttur handboltakonu. Kristín ræddi opinskátt um þessi málefni í Íslandi í dag fyrir fáeinum misserum. Anna Lísa segir að Kristín hafi haft mikil áhrif og opnað umræðuna. „Við höfum fundið fyrir miklum stuðningi í samfélaginu,“ segir Anna Lísa. Hún segir það birtast meðal annars í auknum áhuga á málefninu og það hvernig fólk eigi auðveldara með að tala um hlutina en áður. „Það er meira að segja þannig að fólk sem missti barn fyrir áratugum er farið að stíga fram og tala um reynslu sína. Eitthvað sem það hafði ekki getað áður,“ segir hún og nefnir dæmi um að kona ein hafi nýlega nefnt barn sem hún missti í fæðingu fyrir meira en 50 árum. Missirinn hafi markað djúp spor sem aldrei var almennilega tekist á við. Anna Lísa segir það hafa gengið vel að safna fyrir kælivöggunum tveimur, en þær kostuðu um hálfa milljón króna hver. Fjöldi fólks lagði málefninu lið og má til dæmis nefna mikilvægt framlag úr minningarsjóði Magnúsar Brynjars Guðjónssonar. Félagar í Gleym mér ei styrktarfélaginu eru þegar farnir að beina sjónum sínum að næsta söfnunarverkefni. Það er aðstaðan við duftgarðinn í Fossvogi. Þar er reitur sem ætlaður er fyrir börn sem látist hafa á meðgöngu eða í fæðingu. Gleym mér ei ætlar að beita sér fyrir ýmiss konar endurbótum þar; koma fyrir bekkjum, skiltum og fleiru.Til að fræðast meira um málefnið og starfsemi styrktarfélagsins má fara á gleymmerei-styrktarfelag.is.
Mest lesið „Ekki þurrt auga í salnum“ Lífið Nærfatamódelin sneru aftur eftir sex ára hlé Tíska og hönnun Man ekki eftir öðru eins: Aldrei séð jafn marga falla í yfirlið yfir einni mynd Bíó og sjónvarp Þjóðhátíðarstemning á árshátíð Sýnar Lífið Lén skráð á laugardag ekki framboðslén Lífið „Bullandi stífir í því að halda uppi þessu afneitunarhagkerfi sem við búum í“ Lífið Lá beinast við að gera mynd um Laugavegshlaupið Bíó og sjónvarp Verður þér skipt út fyrir kynlífstæki? Lífið „Lífsstíllinn er að drepa okkur“ Lífið Krúttlegasti innbrotsþjófur landsins Lífið Fleiri fréttir Kveiktu í dansgólfinu í Iðnó „Bullandi stífir í því að halda uppi þessu afneitunarhagkerfi sem við búum í“ „Ekki þurrt auga í salnum“ Krúttlegasti innbrotsþjófur landsins Lén skráð á laugardag ekki framboðslén Verður þér skipt út fyrir kynlífstæki? Þjóðhátíðarstemning á árshátíð Sýnar Orðið það sama og þekkt fataverslun í miðbæ Reykjavíkur Hlutverkið það erfiðasta hingað til Glamúr og glæsileiki í opnun hjá Lovísu DIMMA var flott en einhæf Almenningur um stjórnarslit: „Þetta var komið út í smá rugl“ Sjarmerandi íbúð listafólks í miðbænum Pískur sem þróaðist í hættulegustu samsæriskenningu síðari tíma Sungu bakraddir fyrir Heru og eru nú byrjuð saman Fylgdist með Pétri Jóhanni byggja útieldhús Dóttir Ingós og Alexöndru komin með nafn „Lífsstíllinn er að drepa okkur“ Stjörnulífið: Kóngar, drottningar og stjörnur í útlöndum Ótrúleg tilviljun er Stefán brenndi fánann Hvað eru plötusnúðarnir að hlusta á? „Ég nenni ekkert að hafa eitthvað að sanna“ „Leiðangurinn verður kvennaleiðangur að öllu leyti“ Krakkatían: Óveður, flugvélar og kirkjur Hlaupa Bleiku slaufuna í sólarhring Mary drottning hafi undrast umræðu um brúna skó Björns Laufey á lista yfir áhrifamestu áhrifavaldana Fékk ekki atvinnuviðtöl vegna kínverska nafnsins Höllu fylgt um Kaupmannahöfn: „Er hún ekki vinsæl á Íslandi?“ Fréttatía vikunnar: Halla Tómasdóttir, óveður og tölur Sjá meira