Lífið

Ekki enn búin að finna kjól

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Jones var glæsileg í kjól frá Balenciaga á SAG-verðlaunahátíðinni í janúar.
Jones var glæsileg í kjól frá Balenciaga á SAG-verðlaunahátíðinni í janúar. Vísir/Getty
Leikkonan Felicity Jones sem fer með hlutverk Jane Hawking, eiginkonu stjarneðlisfræðingsins Stephen Hawking, í The Theory of Everything er ekki búin að velja kjól fyrir Óskarsverðlaunahátíðina sem fer fram síðar í mánuðnum.

Jones er tilnefnd sem besta leikkonan fyrir hlutverkið og hefur þegar sópað að sér verðlaunum fyrir frammistöðu sína. Hún hefur því mætt á margar verðlaunahátíðir á síðastliðnum mánuðum og ítrekað vermt lista yfir best klæddu stjörnurnar.

Leikkonan segist vera orðin talsvert stressuð en mun leggja aðaláherslu á að sér líði vel í þeim kjól sem hún kemur til með að klæðast.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×