Eigendur bankanna fá ekki arðinn úr landi vegna hafta jón hákon halldórsson skrifar 26. febrúar 2015 11:30 Miðað við arðgreiðslustefnu Íslandsbanka hefði bankinn átt að greiða eigendum rúma níu milljarða króna í arð á síðasta ári. Vegna gjaldeyrishafta greiddi bankinn einungis fjóra. Arion banki greiddi mu vísir
Eiginfjárhlutfall Íslandsbanka um síðustu áramót var 29,6% en var 28,4% árið á undan. Þetta má lesa út úr ársreikningi bankans sem birtur var í gær. Eigið fé er 185 milljarðar króna en nam 167 milljörðum í árslok 2013. Það er 11 prósenta hækkun á milli ára. Hagnaður Íslandsbanka var 22,8 milljarðar króna og var 23,1 milljarður króna í fyrra. Eigendur fengu greidda samtals fjóra milljarða í arð á síðasta ári eða rétt rúmlega 17 prósent af hagnaði ársins 2013. Arðgreiðslustefna bankans gerir aftur á móti ráð fyrir að eigendur fái 40 prósent af hagnaði bankans í arð. Á aðalfundi bankans verður ákveðið hversu mikið bankinn mun greiða eigendum sínum í arð vegna síðasta árs. Arðsemi eigin fjár Íslandsbanka var 12,8 prósent á árinu 2014 samanborið við 14,7 prósent árið 2013. Í afkomutilkynningu Íslandsbanka kemur fram að þessi niðurstaða sé langt yfir langtímamarkmiði bankans um 12 prósenta arðsemi eiginfjár og góð afkoma þrátt fyrir að eigið fé bankans fari hækkandi. Birna Einarsdóttir bankastjóri sagði aftur á móti á fundinum að það yrði erfiðara að ná arðsemi á eigið fé þegar eigið fé fer hækkandi líkt og verið hefur. Eiginfjárhlutfall Arion banka var 26,3 prósent í lok árs. Eigið fé bankans var 162,2 milljarðar króna en nam 144,9 milljörðum króna í lok árs 2013. Hagnaður bankans nam 28,6 milljörðum á árinu 2014 en 12,66 milljörðum á árinu 2013. Bankinn greiddi arð til hluthafa sinna upp á 7,8 milljarða króna á árinu 2014. Arðgreiðslurnar námu því rétt tæplega 62 prósentum af hagnaðinum árið 2013. Í ársreikningnum kemur fram að stjórn bankans leggur til að 45 prósent af hagnaði ársins verði greidd út sem arður á árinu 2015 vegna ársins 2014. Bæði Íslandsbanki og Arion banki eru að stærstum hluta í eigu kröfuhafa. 87 prósenta hlutur í Arion er í eigu Kaupþings í gegnum félagið Kaupskil, en íslenska ríkið á 13 prósent. Glitnir hf. á 95 prósenta hlut í Íslandsbanka en íslenska ríkið á fimm prósent í bankanum. Segja má að eigendur Kaupþings og Glitnis séu að stærstum hluta erlendir kröfuhafar. Þessir kröfuhafar fá greiddan arðinn í íslenskum krónum og vegna fjármagnshafta hafa þeir takmarkaða möguleika á að skipta þeim í erlenda mynt.
Mest lesið Borgaði klink fyrir Kastalann og ekki krónu fyrir Wok On Viðskipti innlent Leiðir dýra útrás Collab meðfram MBA-námi Viðskipti innlent Að nálgast starfsmann sem líður illa, er reiður eða leiður Atvinnulíf Ósáttur með sætin og fær milljón endurgreidda Neytendur Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti Viðskipti innlent Nýr 40/40 listi: „Spenntur að sjá hvað þetta fólk gerir í framtíðinni“ Atvinnulíf Sóttu fjármálastjóra til Landsbankans Viðskipti innlent Einn stærsti vinnustaður Akraness gjaldþrota Viðskipti innlent Reitir hrista upp í skipuritinu Viðskipti innlent Stærsti Hiab krani í heimi á sumarsýningu Veltis Samstarf Fleiri fréttir Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti Úr boltanum í tryggingarnar Leiðir dýra útrás Collab meðfram MBA-námi Sóttu fjármálastjóra til Landsbankans Borgaði klink fyrir Kastalann og ekki krónu fyrir Wok On Mikið áfall fyrir íslenskan sjávarútveg Einn stærsti vinnustaður Akraness gjaldþrota Syndis ræður reyndan tölvuþrjót Gera margvíslegar athugasemdir við starfshætti Kviku Gjaldþrot Jötunn véla upp á 1,7 milljarða Reitir hrista upp í skipuritinu Matvöruverslun rís á nýjum reit við Keflavíkurflugvöll Gefa út afkomuspá eftir allt saman 96 sagt upp í hópuppsögnum í júní Tekur við fjármálunum hjá Securitas Selja fyrsta bjórinn ekki fyrr en í ágúst Karen Ýr ráðin gæðastjóri Biðin eftir vaxtalækkun gæti lengst enn frekar Minna nú á skoðun ökutækja á Ísland.is Alvotech reiknar með tíföldum tekjum Útflutningsverðmæti eldislaxins meiri en loðnunnar Opna baðstað í Kerlingarfjöllum um helgina Svekkjandi uppgjör og aðstoðarforstjórinn látinn róa Arion banki greiði Seðlabankanum 585 milljónir Rannveig hættir í Seðlabankanum Íslensk hugbúnaðarlausn greinir kolefnisspor innkaupa fyrirtækja Flýta ekki vaxtaákvörðun þrátt fyrir áköll Flestar íbúðir seljist undir eða á auglýstu verði Ýmir Örn fer frá N1 Verðbólga nú 5,8 prósent Sjá meira