Bíó og sjónvarp

Leyndin ekki lengur í tísku

Magnús Guðmundsson skrifar
Örn Marinó Arnarson og Þorkell Harðarson eru mennirnir á bak við Trend Beacon.
Örn Marinó Arnarson og Þorkell Harðarson eru mennirnir á bak við Trend Beacon. Visir/GVA
Tíska og hönnun eru áhrifavaldur í lífi okkar með einum eða öðrum hætti. Fæst okkar búa yfir vitneskju um það hvernig tískutrend vakna til lífsins og skapa auð fyrir þá sem eru með puttann á púlsinum.

Heimildarmyndin Trend Beacons veitir innsýn í hvernig þetta gerist og hvernig tískuheimurinn virkar. Trend Beacons er eftir þá Þorkel Harðarson og Örn Marinó Arnarson en hún verður frumsýnd í Bíói Paradís næstkomandi fimmtudagskvöld.

„Það er nú nokkuð sérstakt hvernig þetta kom til“, segir Örn Marinó. „Málið er að Ragna Fróða, eiginkona Þorkels, er að vinna í NY hjá svona tískuspáfyrirtæki. Ég var búinn að biðja Kela dáldið oft um að útskýra fyrir mér hvað hún væri að gera þarna en gekk eitthvað treglega að ná utan um þetta. Við það fæddist þessi hugmynd að gera heimildarmynd um þennan bransa til þess að skilja þetta betur og við vorum svo heppnir að við virðumst hafa hitt á góða tímasetningu. Þessi bransi hefur verið mjög lokaður og óaðgengilegur almenningi en nú virðist þessi leynd vera komin úr tísku og við græddum á því.“

Örn Marinó segir að þetta fólk sé í raun tveimur til þremur árum á undan okkur hinum.

„Þau eru að velta því fyrir sér hvað kemur næst í litum, sniðum, mynstrum o.s.frv. Þannig að þetta er í raun samfélagsstúdía; að skilja hvað er að koma, hvað gerist næst. Stóru tískufyrirtækin kaupa þetta svo af þeim til þess að lágmarka áhættu og hámarka hagnað.“

Þeir félagar hafa mikið fengist við heimildarmyndagerð og Örn Marinó segir að það sem gerir það svo spennandi sé einmitt þetta sem þeir fundu í þessu verkefni.

„Það er gaman að segja sögur af því sem er dulið. Heimildarmyndagerð er óvissuferð og þú færð ekki alltaf það sem þú átt von á. En vinnsla þessarar myndar hefur gengið sérstaklega vel og hún aðeins tekið um eitt og hálft ár í vinnslu. Nú er að koma að frumsýningu og við erum óneitanlega orðnir spenntir.“

Trend-Beacons-Trailer from Markell Productions on Vimeo.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.