Skoðun

Enga skerðingu á lífeyri aldraðra

Gífurleg óánægja ríkir meðal launþega og sjóðfélaga lífeyrissjóða vegna skerðingar almannatrygginga á lífeyri þeirra eldri borgara, sem eru í lífeyrissjóðum. Þessi óánægja er svo mikil, að hún nálgast uppreisn gegn sjóðunum. Þegar lífeyrissjóðirnir voru stofnaðir var gert ráð fyrir því, að þeir yrðu viðbót við almannatryggingar. Það var ekki reiknað með því, að lífeyrir aldraðra hjá almannatryggingum mundi skerðast vegna greiðslna úr lífeyrissjóði. En það hefur farið á annan veg. Það verður að stöðva þessa skerðingu strax áður en í algert óefni er komið.

Eins og eignaupptaka

Hve mikil er skerðingin? Sá sem hefur 100-200 þúsund krónur á mánuði úr lífeyrissjóði heldur ekki nema um það bil helmingi af þeirri upphæð eða ígildi hennar vegna skerðingar hjá Tryggingastofnun ríkisins. Þetta er mjög ranglátt, þar eð þeir sem hafa greitt í lífeyrissjóð um langa starfsævi líta á lífeyrinn sem sína eign og það er eðlilegt. Þetta er þeirra eign. Það er því líkast því, sem verið sé að taka hluta af eign eldri borgara eignarnámi. Sá, sem aldrei hefur greitt í lífeyrissjóð, fær tiltölulega lítið minna greitt úr kerfinu en sá sem alltaf hefur greitt í sjóðinn. Félag eldri borgara í Reykjavík hefur ályktað, að þetta verði að leiðrétta. Það verði að afnema skerðingu tryggingabóta vegna greiðslna úr lífeyrissjóði. Ef ekki er unnt að gera það í einu lagi verður að gera það í áföngum.

Sjóðsmyndun í lífeyrissjóðunum er mikil í dag. Það eru nú hátt í 3.000 milljarðar í sjóðunum. En á sama tíma og sjóðfélagar eiga svo mikla fjármuni í lífeyrissjóðunum verða margir þeirra að láta sig hafa það að fá sáralítið út úr kerfinu (frá lífeyrissjóðum og TR), þegar þeir fara á eftirlaun. Það er ranglátt og verður að leiðrétta það.

Nýjar viðræður nauðsynlegar

En hvernig á að tryggja framgang þessa umbótamáls eldri borgara og annarra brýnna kjaramála aldraðra? Fyrir alþingiskosningarnar 2013 fóru fulltrúar kjaranefndar Félags eldri borgara í Reykjavík í Alþingishúsið og ræddu við formenn allra þingflokkanna. Einnig ræddu þeir við formenn annarra stjórnmálaflokka. Það varð dágóður árangur af þessum viðræðum: Hreyfingin flutti frumvarp um að afturkalla kjaraskerðingu aldraðra og öryrkja frá 2009. Og Ólöf Nordal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, flutti frumvarp um að afturkalla hluta kjaraskerðingarinnar.

Einnig varð sá árangur af viðræðunum, að ýmis stefnumál og tillögur um kjarabætur lífeyrisþega rötuðu inn í kosningastefnuskrár núverandi stjórnarflokka. Það þarf greinilega að tala á ný við ráðamenn allra stjórnmálaflokkanna til þess að knýja fram kjarabætur aldraðra og öryrkja og tryggja að staðið verði við öll kosningaloforðin, sem lífeyrisþegum voru gefin.




Skoðun

Skoðun

Þorpið

Alina Vilhjálmsdóttir skrifar

Sjá meira


×