Erlent

Berjast gegn grindhvaladrápi

Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar
Paul Watson er andlegur leiðtogi liðsmanna Sea Shepherd.
Paul Watson er andlegur leiðtogi liðsmanna Sea Shepherd. Mynd/Sea Shepherd
Skipið Brigitte Bardot í eigu hvalaverndunarsamtakanna Sea Shepherd kom til Færeyja á fimmtudaginn.

Skipið og áhöfn hennar er mætt til að taka þátt í aðgerðum samtakanna sem bera yfirskriftina Sleppið grindinni, en samtökin mótmæla grindhvaladrápi Færeyinga.

Lögregla hafði afskipti af meðlimum Sea Shepherd en án afleiðinga. Þetta er í sjötta skiptið sem Sea Shepherd mætir til Færeyja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×