Erlent

Bretadrottning hittir kanslarann

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Elísabet önnur hitti Angelu Merkel í gær.
Elísabet önnur hitti Angelu Merkel í gær. nordicphotos/afp
Elísabet önnur, drottning Breta, mætti á þriðjudag til Berlínar ásamt manni sínum, Filippusi öðrum. Heimsóknin til Berlínar markaði upphaf þriggja daga heimsóknar hennar til Þýskalands.

Drottningin nýtti daginn vel. Hún heimsótti Joachim Gauck, forseta Þýskalands, í Bellevue-höll. Auk þess fór hún í bátsferð um ána Spree og hitti Angelu Merkel, Þýskalandskanslara. Merkel hafði í vikunni sagst vilja ræða við drottninguna um framtíð Breta í Evrópusambandinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×