Bandarískir plöturisar banka á dyrnar Guðrún Ansnes skrifar 29. júní 2015 09:00 Sara sinnir tónlistinni af miklum móð, en starfar sem fyrirsæta fyrir Eskimo models þess á milli. vísir/valli „
Toppurinn var að komast í útvarpið, en svo allt í einu er ég komin á topplista útvarpsstöðvanna, og allt farið að rúlla, “ segir hin átján ára Sara Pétursdóttir, sem gengur undir listamannsnafninu Glowie. Lagið hennar No more hefur heillað landann upp úr skónum og klífur hvern vinsældarlistann á fætur öðrum á íslenskum útvarpsstöðvum, en margir hverjir telja um erlenda poppskvísu að ræða við hlustun, slíkur er bragurinn á laginu. Eru þrjú önnur lög væntanleg í spilun í sumar. Nú er svo komið að erlend plötufyrirtæki hafa sýnt Glowie áhuga, en hún er í slagtogi við hið hæfileikaríka teymi, Stop.Wait.Go., sem hefur heldur betur gert garðinn frægan, nú síðast með framlagi Íslands til Eurovision. „Allt byrjaði þetta svoleiðis að ég vann Söngkeppni framhaldsskólanna árið 2014, fyrir hönd Tækniskólans í Reykjavík. Þar nam ég hárgreiðslu, og upp úr því hafði Pálmi Ásgeirsson samband við mig fyrir hönd hópsins og langaði til að vinna með mér,“ segir Glowie sem greip gæsina að sjálfsögðu um leið og hún gafst. „Á þessu tímabili voru þeir mikið úti í Los Angeles og nóg að gera, svo þetta fór hægt af stað.“Þorsteinn Sindri Baldvinsson, betur þekktur sem Stony fer einnig á kostum í laginu.Lagið er komið frá piltunum en Glowie flytur það, ásamt aðkomu Stony, Þorsteins Sindra Baldvinssonar, YouTube-stjörnu með meiru. „Þetta er náttúrulega bara geggjað, og ég átti aldrei von á að þetta myndi ganga svona vel,“ segir Glowie, og bætir við að sannarlega sé hún að upplifa stóra drauminn, sem alltaf hefur verið að meika það í músíkinni. Spurð út í nafnið Glowie, segir hún sig hafa langað til að skapa sér sína sérstöðu þar sem Stop.Wait.Go. hópurinn hafi þegar verið með tvær Sörur á sínum snærum. „Sara er mjög flott nafn,en mig langaði að hafa mitt eigið. Upphaflega langaði mig mikið að hafa það ítalskt, þar sem ég er einn sextándi ítölsk,“ segir hún og skellir upp úr. Eftir töluverðar vangaveltur fram og til baka varð nafnið Glowie að lokum fyrir valinu, enda nokkuð þjált á erlendri grund sem og hér heima. Segist Glowie nú vinna hörðum höndum við að búa til öflugan pakka sem hægt verði að sýna plöturisunum, en kýs að segja ekki meira um stöðuna að svo stöddu. gudrun@frettabladid.is
Mest lesið Sjóðheitir og einhleypir inn í haustið Lífið Þreyttur á stefnumótaöppum: „Hvernig fer ég að því að kynnast fólki?“ Lífið Sjóðheitar og einhleypar inn í haustið Lífið Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Lífið Hafi enn verið hreinn sveinn Lífið Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Lífið Henti listaverkinu í ruslið Menning Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Lífið Harry og Meghan séu ekki að skilja Lífið Gullmoli í Giljalandi Lífið Fleiri fréttir Sjóðheitir og einhleypir inn í haustið Þreyttur á stefnumótaöppum: „Hvernig fer ég að því að kynnast fólki?“ Gullmoli í Giljalandi Hafi enn verið hreinn sveinn Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Harry og Meghan séu ekki að skilja Galið að fræðsla um snípinn sé af skornum skammti Móðir Whitney Houston látin Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Vann til verðlauna fyrir götubitann Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði Fylgst með tímaskeiði í lífi konu sem greinist með krabbamein Gátu ekki talað saman fyrir syngjandi þjónum „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Fanney Dóra og Aron gáfu syninum nafn Náði að sættast við bróður sinn fyrir andlátið Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og áminning um óöryggi Eins og þruma úr heiðskíru lofti Sláturgerð, Sherry og súkkulaði á Hellu Myndaveisla: Eliza Reid og Ásdís Spanó létu sig ekki vanta í Núllið Covidsmitaður Al Pacino var nær dauða en lífi Dolly gefur 135 milljónir vegna Helenu Með húsaflutninga á heilanum Krakkatían: Ber, forsetar og prinsessur Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til „Ég var heppinn. En ekki hann“ Sjá meira