Tíska og hönnun

Kögurjakkar og stígvél á Glastonbury

Gunnhildur Jónsdóttir skrifar
Breska fyrirsætan Suki Waterhouse spókaði sig um í kögurjakka.
Breska fyrirsætan Suki Waterhouse spókaði sig um í kögurjakka. Myndir/Getty
Það fer ekki á milli mála að Glastonbury-tónlistarhátíðin er sú stærsta sem haldin er í Evrópu ár hvert.

Hátíðin er haldin í Vestur-Englandi og þar flykkjast að stærstu tónlistarmenn heimsins til þess að koma fram og þekktustu stjörnur Bretlands mæta til þess að skemmta sér.

Ofurfyrirsætan og þáttarstjórnandinn Alexa Chung er þekkt fyrir einstakan stíl.
Glastonbury hefur lengi verið þekkt fyrir frumlega götutísku sem leggur oft línurnar fyrir komandi tískustrauma. Hér ber helst að nefna Hunter-gúmmístígvélin sem hafa verið gerð ódauðleg á hátíðinni af stjörnum á borð við Kate Moss og Alexa Chung.

Þetta er hátíðin þar sem óhætt er að taka áhættu í klæðaburði enda komast allir upp með það, en í grunninn eru margir að vinna með það sem hefur verið lengi í tísku í tísku eins og til dæmis blómahárbönd, gallastuttbuxur og kögurvesti og kjóla.

Það voru líka margir sem fóru nýjar leiðir og prófuðu alveg nýja hluti. Helst ber að nefna níðþrönga samfestinga, mynstraðar skyrtur og silkikjóla.

Flestir voru í Hunter-stígvélunum eða Dr. Martens hermannaskóm. Speglasólgleraugu og mittistöskur voru eins og rauður þráður í gegnum hátíðina ásamt derhúfum. 

Fatahönnuðurinn Stella McCartney lét sig ekki vanta á Glastonbury.
Tíska er þó ekki það eina sem hátíðin snýst um en tónlistarmenn slást um að fá að spila á hátíðinni.

Skipuleggjendur Glastonbury hafa sætt mikilli gagnrýni þetta árið vegna þess að þeir fengu rapparann Kanye West til þess að vera með aðaltónleikana. 

Aðdáendur hátíðarinnar voru afar ósáttir þar sem Glastonbury hefur alltaf verið rokkhátíð.

Kanye náði heldur betur að þagga niður í gagnrýnendum sínum og hélt eina flottustu tónleika sem sögur fara af. 

Söngkonan Adele sást í fyrsta skipti svo mánuðum skiptir opinberlega.
Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem tónlistamaður úr annarri tónlistastefnu er aðalnúmerið á Glastonbury en Beyoncé hlaut þann heiður árið 2011 og var þá fyrsta konan sem náði þeim árangri í 20 ár. 

Foo Fighters áttu að vera eitt af aðalnúmerunum þetta árið ásamt Kanye, en söngvari sveitarinnar, Dave Grohl, fótbrotnaði fyrir stuttu og náði því ekki að koma fram.

Florence and the Machines komu í þeirra stað.

FKA kom fram á hátíðinni viku eftir að hún kom fram hér á Íslandi.
Pharrell Williams, The Who, Alt-J, FKA Twigs, Lionel Richie og ótal margir aðrir komu einnig fram á hátíðinni.

Talið er að um 150.000 gestir hafi verið á svæðinu en tónleikunum er dreift á mörg svið svo hægt sé að hafa betri stjórn á mannfjöldanum. 

Athygli vakti að Dalai Lama mætti á svæðið og ávarpaði gesti frá aðalsviðinu ásamt söngkonunni Patti Smith. Tilefnið var 80 ára afmæli hans í næstu viku.

Saman kynntu Dalai Lama og Patti herrann Lionel Richie upp á svið.

Kanye West og Kim Kardashian mættu í þyrlu frá London. Kanye hélt svakalega tónleika á laugardagskvöldið.

Tengdar fréttir

Limp Bizkit langar á Glastonbury

Fred Durst og félagar í Limp Bizkit yrðu þakklátir ef þeim yrði boðið að spila á hátíðinni. Þá er ný plata væntanleg frá sveitinni.

Dalai Lama hitar upp fyrir Lionel Richie á Glastonbury

Svo virðist sem Dalai Lama, leiðtogi búddista í Tíbet og æðsti kennimaður í Gelug-reglunnar, muni hita upp fyrir bandarísku stórstjörnuna Lionel Richie á Glastonbury-hátíðinni á næsta ári.

Geggjuð Glastonbury-hátíð

Nú liggur fyrir hvaða listamenn koma fram á Glastonbury-tónlistarhátíðinni en hátíðin er ein sú allra stærsta í heiminum.

Hressa upp á Glastonbury-hátíðina

Lars Ulrich, trommuleikari Metallica tjáði sig um gagnrýnisraddir gagnvart því að Metallica verði aðalnúmerið á Glastonbury.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×