Vönduð tónlist og bandarísk matarhefð Gunnar Leó Pálsson skrifar 2. júlí 2015 10:00 Sigurlaug Gísladóttir, betur þekkt sem Mr. Silla, kemur fram. vísir/daníel
Tónlistar- og matarhátíðin KEX Köntrí, sem fram fer á Kexi Hosteli, hefst í dag og stendur yfir helgina. Um er að ræða árlega hátíð sem er ávallt haldin í kringum þjóðhátíðardag Bandaríkjanna, 4. júlí, og er boðið upp á tónlist sem er undir sterkum áhrifum frá bandarískri þjóðlagatónlist. Venjan hefur verið að bandarískt tónlistaratriði troði upp á hátíðinni og áður hefur tónlistarfólk á borð við Lambchop og Morgan Kane komið fram ásamt einvalaliði íslensks tónlistarfólks. Í ár verður tónlistin eingöngu íslensk og eru tónlistaratriðin einstaklega vegleg í ár. Hljómsveitin Lights on the Highway kemur fram á hátíðinni og verða þetta þeirra fyrstu tónleikar í nokkur ár. Tónlistarkonan Mr. Silla mun flytja nokkra vel valda kántrístandarda í bland við nokkur frumsamin lög. Þá ætlar KK, sem er einn ástsælasti tónlistarmaður okkar Íslendinga, einnig að koma fram. Hátíðinni verður slaufað með miklum bravúr þegar KEX Köntrí All Stars koma fram á sjálfan þjóðhátíðardaginn. KEX Köntrí All Stars er húshljómsveit Kex og er skipuð þeim Ingibjörgu Elsu Turchi, Óskari Kjartanssyni, Tómasi Jónssyni og Erni Eldjárn ásamt einvalaliði söngvara sem eru þau Arnar Ingi Ólafsson, Elín Ey, Lilja Björk Runólfsdóttir og Snorri Helgason. Matseðillinn á Sæmundi verður í sparifötunum og verður tileinkaður bandarískri matarhefð og á matseðlinum verður m.a. hinn landsfrægi frelsisborgari, kjúklingaleggir, svínarif og svalandi drykkir.
Mest lesið Sjóðheitir og einhleypir inn í haustið Lífið Þreyttur á stefnumótaöppum: „Hvernig fer ég að því að kynnast fólki?“ Lífið Sjóðheitar og einhleypar inn í haustið Lífið Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Lífið Hafi enn verið hreinn sveinn Lífið Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Lífið Henti listaverkinu í ruslið Menning Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Lífið Harry og Meghan séu ekki að skilja Lífið Gullmoli í Giljalandi Lífið Fleiri fréttir Sjóðheitir og einhleypir inn í haustið Þreyttur á stefnumótaöppum: „Hvernig fer ég að því að kynnast fólki?“ Gullmoli í Giljalandi Hafi enn verið hreinn sveinn Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Harry og Meghan séu ekki að skilja Galið að fræðsla um snípinn sé af skornum skammti Móðir Whitney Houston látin Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Vann til verðlauna fyrir götubitann Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði Fylgst með tímaskeiði í lífi konu sem greinist með krabbamein Gátu ekki talað saman fyrir syngjandi þjónum „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Fanney Dóra og Aron gáfu syninum nafn Náði að sættast við bróður sinn fyrir andlátið Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og áminning um óöryggi Eins og þruma úr heiðskíru lofti Sláturgerð, Sherry og súkkulaði á Hellu Myndaveisla: Eliza Reid og Ásdís Spanó létu sig ekki vanta í Núllið Covidsmitaður Al Pacino var nær dauða en lífi Dolly gefur 135 milljónir vegna Helenu Með húsaflutninga á heilanum Krakkatían: Ber, forsetar og prinsessur Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til „Ég var heppinn. En ekki hann“ Sjá meira