Allt falt nema nærbrækur og tannbursti Guðrún Ansnes skrifar 4. júlí 2015 12:00 Ýmissa grasa kennir hjá þessum listaspírum, en þær lofa til að mynda bongóblíðu og sól handa öllum. vísir/andri marinó „
Ég var að klára Listaháskólann og er með tonn af skuldum á bakinu svo ég verð hér alla helgina að selja utan af mér,“ segir Viktoría Blöndal, sem stendur fyrir allsherjar flóamarkaði á Kaffistofunni, nemendagalleríi LHÍ ásamt vinkonu sinni Söru Björg Bjarnadóttur. „Ég ætla að flytja af landi brott og þessi námslán eru ekkert lamb að leika sér við, svo nú verður allt til sölu, nema nærbuxurnar og tannburstinn,“ segir Viktoría ansi borubrött. Mun hún leggja Ósló að fótum sér, en sjálf er hún leikstjóri, skáld, rithöfundur og ýmislegt fleira, sem hún mun vinna með þar ytra. Meðal þess sem þær stöllur ætla að bjóða upp á er sjálfsævisaga Viktoríu. „Ég varð nýlega þrítug svo ég hef verið að skrifa ævisöguna og tek tíu ár fyrir í hverju bindi,“ segir Viktoría en hún hefur gefið bækurnar út í þrjú þúsund eintökum, sem þó hafa ekki farið í almenna sölu fyrr en nú. „Ég hef aðallega verið að selja vinum og vandamönnum, en nú verð ég að eiga fyrir flutningunum.“ Þá munu þær bjóða upp á glás af Jesústyttum og eftirlíkingum af Maríu mey, sem Viktoría reyndi lengi að samsama sig við í æsku, en hefur nú ákveðið að láta lönd og leið, og geta aðrir nú notið góðs af þeim. Einnig verða málverk eftir Söru til sölu. „Hún er reyndar ekki að fara neitt, en verður að fjármagna næsta Cocoa Puffs skammtinn. Einu sinni var neysla veisla, en nú þarf að harka.“ „Til að gera góðan markað enn betri mun leynigestur kíkja við, sem ég get ómögulega sagt hver er, en ég get sagt að sjón er sögu ríkari,“ bendir Viktoría á og laumar því að, að þarna sé um tónlistaratriði að ræða. Munu Viktoría og Sara taka á móti gestum og gangandi á Hverfisgötu, og segjast hafa fengið vilyrði frá sjálfri sólinni fyrir að láta sjá sig. „Ég lofa tuttugu og átta gráðum og nógu af útfjólubláum geislum. En auðvitað bara til þeirra sem versla fyrir fimm þúsund krónur eða meira,“ segir Viktoría skellihlæjandi að lokum.
Mest lesið Þreyttur á stefnumótaöppum: „Hvernig fer ég að því að kynnast fólki?“ Lífið Hafi enn verið hreinn sveinn Lífið „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Lífið Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Lífið Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Lífið Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Lífið Henti listaverkinu í ruslið Menning Harry og Meghan séu ekki að skilja Lífið Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Lífið Kemur frá Sýrlandi og syngur á íslensku Tónlist Fleiri fréttir Þreyttur á stefnumótaöppum: „Hvernig fer ég að því að kynnast fólki?“ Gullmoli í Giljalandi Hafi enn verið hreinn sveinn Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Harry og Meghan séu ekki að skilja Galið að fræðsla um snípinn sé af skornum skammti Móðir Whitney Houston látin Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Vann til verðlauna fyrir götubitann Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði Fylgst með tímaskeiði í lífi konu sem greinist með krabbamein Gátu ekki talað saman fyrir syngjandi þjónum „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Fanney Dóra og Aron gáfu syninum nafn Náði að sættast við bróður sinn fyrir andlátið Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og áminning um óöryggi Eins og þruma úr heiðskíru lofti Sláturgerð, Sherry og súkkulaði á Hellu Myndaveisla: Eliza Reid og Ásdís Spanó létu sig ekki vanta í Núllið Covidsmitaður Al Pacino var nær dauða en lífi Dolly gefur 135 milljónir vegna Helenu Með húsaflutninga á heilanum Krakkatían: Ber, forsetar og prinsessur Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til „Ég var heppinn. En ekki hann“ „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Sjá meira