Lífið

Snoop dæmir keppni fyrir Íslenska aðdáendur

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Rapparinn verður dómari í leitinni að skemmtilegasta aðdáandanum.
Rapparinn verður dómari í leitinni að skemmtilegasta aðdáandanum. Vísir/getty
Rapparinn Snoop Dogg verður dómari í leitinni að skemmtilegasta aðdáanda sínum á Íslandi. Leikurinn er haldinn á vegum FM957 og Nordic Events og fer fram á samfélagsmiðlum. Þar geta íslenskir aðdáendur Snoop Dogg sent myndir af sér og aukast sigurlíkurnar ef Snoop eða eitthvað tengt honum er á myndinni.

Skemmtilegasti aðdáandi Snoop Dogg verður fundinn með netkosningu og vali rapparans, sem verður einráður í dómnefndinni í leiknum. Í verðlaun verða VIP-miðar á tónleika Snoop, sem fara fram 16. júlí, auk þess sem sigurvegarinn fær að hitta rapparann vinsæla.- kak






Fleiri fréttir

Sjá meira


×