Lífið

Tíkin hennar Lady Gaga situr fyrir

Lady Gaga ásamt tíkinni sinni
Lady Gaga ásamt tíkinni sinni Mynd/Vísir
Á meðan flest tískuhús nota heimsfræg andlit í herferðum sínum, þá ákvað töskuframleiðandinn Coach að fara heldur óhefðbundna leið.

Stjarna nýjustu auglýsinga hans er engin annar en hundur söngkonunnar Lady Gaga sem ber nafnið Miss Asia Kinney. Tíkin er svört og er af tegundinni „french bulldog“. 

Í yfirlýsingu frá Coach segir að myndin af Miss Asia sé aðeins sú fyrsta í röðinni og búast megi við fleiri myndum af dýrum. Ekki er vitað hvort hinar skepnurnar sem munu birtast séu eign frægra eigenda.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×