Lífið

Stewart þurfti að sleppa þröngu buxunum

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Hjónakornin hafa verið gift frá árinu 2007 og eiga tvo syni saman.
Hjónakornin hafa verið gift frá árinu 2007 og eiga tvo syni saman. Vísir/Getty
Penny Lancaster, eiginkona söngvarans Rods Stewart, var í viðtali í breska þættinum Loose Women á dögunum þar sem hún sagði að Stewart hefði þurft að hætta að klæðast þröngum buxum, hans einkennisklæðnaði, þegar þau voru að reyna að geta sitt annað barn.

Lancaster og Stewart hafa verið gift síðan árið 2007 og eiga saman tvo syni, þá Alistair níu ára og Aiden fjögurra ára, og sagði Lancaster í viðtali að læknir hefði ráðlagt eiginmanni hennar að sleppa þröngum fatnaði fyrir neðan mitti á meðan á þeim tilraunum stæði.

Hvort sem það var þeim ráðleggingum að þakka eða ekki þá buðu hjónakornin annað barn sitt velkomið í heiminn þann 16. febrúar árið 2011 en Stewart, sem varð sjötugur á þessu ári, á fyrir átta börn með fimm konum.

Von er á nýrri plötu frá söngvaranum í október á þessu ári og mun hún bera nafnið Another Country og verður þetta tuttugasta og níunda breiðskífa söngvarans sem hefur gefið út ófáa smellina í gegnum árin, en hann gaf út sína fyrstu breiðskífu árið 1969.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×