Lífið

Kistulagning Dolly fer fram í kvöld

Gunnhildur Jónsdóttir skrifar
Þura Stína hefur unnið á Dolly frá upphafi, síðasta árið sem rekstrarstjóri.
Þura Stína hefur unnið á Dolly frá upphafi, síðasta árið sem rekstrarstjóri. Vísir/Andri
Skemmtistaðnum Dolly verður lokað á sunnudag og í tilefni þess ætla aðstandendur að halda kistulagningu í kvöld.

Á morgun verður jarðarför og erfidrykkjan er á laugardaginn. Alls munu 20 plötusnúðar þeyta skífum á staðnum um helgina. Húsið verður opnað fyrr en vanalega um helgina og mikið af tilboðum á barnum.

Það munu eflaust margir sakna Dolly en hann var opnaður fyrir tæpum þremur árum og hefur alltaf verið vinsæll. Nú er þó komið að endalokum og munu nýir rekstraraðilar taka við og breyta staðnum. Eignarhaldið helst óbreytt.

Þura Stína hefur verið rekstrarstjóri Dolly seinasta árið en hefur þó unnið þar frá upphafi.

„Maður á auðvitað eftir að sakna Dolly en það sem kemur í framhaldinu í húsinu er mjög spennandi. Það er ekki hægt að segja frá því að svo stöddu. Ég er bara ánægðust með að húsið mun hýsa svipaða starfsemi og er núna í gangi sem er mikill léttir í ljósi þess sem hefur verið í gangi í nágrenninu.“

Það kom fram í vikunni að skemmtistaðirnir Húrra og Gaukurinn munu hugsanlega þurfa að víkja fyrir verslunum fyrir ferðamenn. Húsið sem hýsir Dolly er gamalt en það stendur í Hafnarstrætinu á besta stað. Ýmis starfsemi hefur verið starfrækt í húsinu seinustu ár.

Breytingar fara strax af stað eftir lokun Dolly. Jón Gunnar Geirdal er einn af þeim sem koma að rekstri nýrrar starfsemi í húsinu.

„Ég veit að þeir eru að stefna á að opna nýja staðinn í ágúst. En við ætlum að nýta helgina vel og við eigum von á fullt af fólki. Það verður tekið vel á móti öllum á þessari kveðjustund og það verður auðvitað frítt inn, eins og það hefur alltaf verið.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×