Kourtney og Scott rjúfa upplýsingabann 9. júlí 2015 12:00 Parið hefur verið saman í níu ár og á þrjú börn.
Kourtney skrifaði við myndina að hún væri ein af þeim heppnu, en hún ætti tvo ása uppí erminni, sem án nokkurs vafa er grjóthörð yfirlýsing, en systurnar eru gríðarlega áhrifamiklar í skemmtanaiðnaðinum. Mál málanna í stjörnuheiminum vestanhafs er án nokkurs vafa sambandsslit Kourtney Kardashian og Scotts Disick. Nú hafa þau bæði bundið enda á samfélagsmiðlabannið sem þau settu sér fyrir nokkrum dögum. Tók Kourtney sig til og birti þrjár myndir í röð, en minntist ekki einu orði á téðan Scott en sagðist eiga tvo ása uppí erminni, systur sínar Kim og Khloe, sem eru býsna umfangsmilklar þar ytra. Tók Scott þann pól í hæðina að birta þá af sér mynd á næturklúbbi sínum í Las Vegas, og stingur upp á að aðdáendur mæti og skemmti sér með honum. Hann virðist hinsvegar hafa tekið hana út, og skellt inn mynd af forláta kagga sem hann segist þurfa að eignast samstundis. Munurinn á endurkomum Kourtney og Scott var afgerandi, en hughreystandi og upplífgandi athugasemdum rigndi yfir hana en holskefla ókvæðisorða helltist yfir Scott. Eru aðdáendur þessa raunveruleikaþáttapars afar vonsviknir með Scott, sem hefur verið afar sýnilegur í þáttunum Keeping up With the Kardashian. Hafa áhorfendur því beðið í ofvæni eftir yfirlýsingum frá þessu fyrrverandi pari og því umrætt samfélagsmiðlabann mörgum óbærilegt. Ástæða sambandsslitanna er framhjáhald Scotts, sem hann fór ekki sérlega leynt með og fyllti alla helstu slúðurmiðlana í síðustu viku. Herma fregnir að hann hafi skilið Kourtney eftir eina með börnin þeirra þrjú og ekki látið í sér heyra eða svarað símtölum, heldur dundað sér við skemmtanahald og stelpustand í Las Vegas.
Mest lesið Þreyttur á stefnumótaöppum: „Hvernig fer ég að því að kynnast fólki?“ Lífið Hafi enn verið hreinn sveinn Lífið „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Lífið Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Lífið Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Lífið Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Lífið Henti listaverkinu í ruslið Menning Harry og Meghan séu ekki að skilja Lífið Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Lífið Kemur frá Sýrlandi og syngur á íslensku Tónlist Fleiri fréttir Þreyttur á stefnumótaöppum: „Hvernig fer ég að því að kynnast fólki?“ Gullmoli í Giljalandi Hafi enn verið hreinn sveinn Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Harry og Meghan séu ekki að skilja Galið að fræðsla um snípinn sé af skornum skammti Móðir Whitney Houston látin Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Vann til verðlauna fyrir götubitann Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði Fylgst með tímaskeiði í lífi konu sem greinist með krabbamein Gátu ekki talað saman fyrir syngjandi þjónum „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Fanney Dóra og Aron gáfu syninum nafn Náði að sættast við bróður sinn fyrir andlátið Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og áminning um óöryggi Eins og þruma úr heiðskíru lofti Sláturgerð, Sherry og súkkulaði á Hellu Myndaveisla: Eliza Reid og Ásdís Spanó létu sig ekki vanta í Núllið Covidsmitaður Al Pacino var nær dauða en lífi Dolly gefur 135 milljónir vegna Helenu Með húsaflutninga á heilanum Krakkatían: Ber, forsetar og prinsessur Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til „Ég var heppinn. En ekki hann“ „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Sjá meira