Lífið

Kourtney og Scott rjúfa upplýsingabann

Parið hefur verið saman í níu ár og á þrjú börn.
Parið hefur verið saman í níu ár og á þrjú börn.
Kourtney skrifaði við myndina að hún væri ein af þeim heppnu, en hún ætti tvo ása uppí erminni, sem án nokkurs vafa er grjóthörð yfirlýsing, en systurnar eru gríðarlega áhrifamiklar í skemmtanaiðnaðinum.
Mál málanna í stjörnuheiminum vestanhafs er án nokkurs vafa sambandsslit Kourtney Kardashian og Scotts Disick. Nú hafa þau bæði bundið enda á samfélagsmiðlabannið sem þau settu sér fyrir nokkrum dögum.

Tók Kourtney sig til og birti þrjár myndir í röð, en minntist ekki einu orði á téðan Scott en sagðist eiga tvo ása uppí erminni, systur sínar Kim og Khloe, sem eru býsna umfangsmilklar þar ytra. Tók Scott þann pól í hæðina að birta þá af sér mynd á næturklúbbi sínum í Las Vegas, og stingur upp á að aðdáendur mæti og skemmti sér með honum. Hann virðist hinsvegar hafa tekið hana út, og skellt inn mynd af forláta kagga sem hann segist þurfa að eignast samstundis. 



Munurinn á endurkomum Kourtney og Scott var afgerandi, en hughreystandi og upplífgandi athugasemdum rigndi yfir hana en holskefla ókvæðisorða helltist yfir Scott. Eru aðdáendur þessa raunveruleikaþáttapars afar vonsviknir með Scott, sem hefur verið afar sýnilegur í þáttunum Keeping up With the Kardashian.

Hafa áhorfendur því beðið í ofvæni eftir yfirlýsingum frá þessu fyrrverandi pari og því umrætt samfélagsmiðlabann mörgum óbærilegt. 

Ástæða sambandsslitanna er framhjáhald Scotts, sem hann fór ekki sérlega leynt með og fyllti alla helstu slúðurmiðlana í síðustu viku. Herma fregnir að hann hafi skilið Kourtney eftir eina með börnin þeirra þrjú og ekki látið í sér heyra eða svarað símtölum, heldur dundað sér við skemmtanahald og stelpustand í Las Vegas. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×