Lífið

Ætlar að verða næsta gleraugnamódel Noregs

Guðrún Ansnes skrifar
Aníta hefur mikinn áhuga á fyrirsætustörfum og dauðlangar að verða gleraugnafyrirsæta Noregs 2015.
Aníta hefur mikinn áhuga á fyrirsætustörfum og dauðlangar að verða gleraugnafyrirsæta Noregs 2015. mynd/aðsend
„Mig hefur alltaf langað til að verða módel, en fengið endalaus nei allsstaðar, svo það er mjög gaman að vera í fyrsta sætinu,“ segir Aníta Ingibjörg Davíðsdóttir, sem keppir í norsku gleraugnafyrirsætu keppninni, Årets brillemodell 2015, og vermir þar efsta sætið.

Er keppnin haldin í níunda skiptið í ár, og er hún á vegum gleraugnarisans Specsavers Optikk þar í landi, sem heldur úti sjötíu og fjórum gleraugnaverlsunum um gjörvallan Noreg.

„Ég var alveg í sjokki þegar ég sá að ég var komin efst,“ útskýrir Aníta Ingibjörg en hana grunar að íslenskar kynsystur hennar hafi haft þar mikil áhrif.

„Vinkona mín stakk uppá að ég myndi deila þessu inn í hópinn Beauty tips og sjá hvort þær væru ekki til í að hjálpa mér að komast ofarlega.“ Ekki stóð á viðbrögðum því það næsta sem Aníta vissi var að hún var komin á toppinn. Þess ber að geta að hópurinn inniheldur hátt í þrjátíu þúsund meðlimi.

„Nú þarf ég bara að halda mér þar og fá fólk til að kjósa mig, en sú sem er næst á eftir mér hefur tekið rosa kipp undanfarið,“ bendir hún á og er sérlega glöð með árangurinn. Aníta Ingibjörg tók einnig þátt í fyrra en gekk ekki nærrum jafn vel.

Er til mikils að vinna, en sigurvegarinn hlýtur titilinn glæsilega, Gleraugnamódel ársins, ásamt myndatöku hjá einhverjum þekktasta ljósmyndara Noregs, Lars Evanger verða myndirnar birtar í hinu nafntogaða tískutímariti Costume. Þá mun gleraugnamódelið ferðast til Tansaníu í Afríku á næsta ári þar sem viðkomandi mun beita sér fyrir að mæla sjón innfæddra og skaffa svo gleraugu fyrir þá sem þurfa.

„Það yrði ofboðslega gaman, og mig langar mikið að komast í það. Svo held ég að sigurinn gæti opnað fyrir mér dyr í fyrirsætubransanum, sem mig hefur alltaf langað að vera partur af,“bendir Aníta einlæg á.

Munu úrslitin kunngjör þann 11. ágúst næstkomandi svo Aníta óskar eftir stuðningi sem flestra til að þessi draumur verði að veruleika. Til að kjósa Anítu þarf aðeins að smella hér og ýta á hjartað fyrir neðan myndina af henni. 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×