Lífið

Kleinuhringjaklandrið dregur dilk á eftir sér

Grande ásamt dansaranum, sem menn segja að sé nýi kærastinn.
Grande ásamt dansaranum, sem menn segja að sé nýi kærastinn.
Söngfuglinn Adriana Grande hefur vart undan við að láta umheiminn vita að hún virkilega elski Bandaríkin og sé miður sín yfir að hafa sleikt kleinuhringi í kleinuhringjabúðinni Wolfee Donuts á dögunum.

Þá hefur hún blásið af allt fyrirhugað tónleikahald helgarinnar í Cincinnati í kjölfar voðaverkanna.

Voru málsatvik þannig að skvísan var stödd í umræddri kleinuhringjabúð með einum dansaranna sinna, sem hún lét vel að. Náðist athæfið upp á öryggismyndavél og rataði þaðan rakleiðis á netið. 

Til að bæta gráu ofan á svart sagðist söngkonan hata Bandaríkin þegar starfsmaður verslunarinnar stillti upp fleiri kleinuhringjum. Hefur hún borið fyrir sig að fjölmiðlar hafi tekið orð hennar alfarið úr samhengi, henni hafi einungis verið umhugað um heilsu samlanda sinna. 

Hefur Grande nú lofað því að vanda sig betur sem opinber persóna og segist alfarið hætt að sleikja ókeypta vöru.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×