Lífið

Slembilukkan skarst í leikinn

Kara og Owen eru miklir stuðningsmenn listar, í hvaða formum sem hún kann að leynast.
Kara og Owen eru miklir stuðningsmenn listar, í hvaða formum sem hún kann að leynast.
„Þarna getur fólk gengið inn af götunni og gripið í míkrafóninn, og gert það sem því sýnist, reyndir og óreyndir,“

segir Owen Fie ljósmyndari, sem stendur fyrir Open Mic-kvöldum á skemmtistaðnum Húrra ásamt eiginkonu sinni Köru Hergils dansara. Brenna þau fyrir að búa til pláss fyrir fólk til að tjá sig og sína list. Segir Owen þau ekki jafn hungruð og áður í að fylla í slík pláss sjálf með sínu listformi, en iða í skinninu yfir að fá að opna möguleikann fyrir aðra.

„Við einblínum ekki á neitt sérstakt, það er engin regla um að þarna skuli grínast. Alls ekki. Þetta snýst meira um fólk sem hefur áhuga á að tjá sig og jafnvel prófi brot úr verkum sem það hefur lokað ofan í skúffu fyrir áhorfendur. Helst viljum við fá að blanda saman óreyndum áhugamönnum og atvinnumönnum,“ útskýrir Owen.

Segir Owen sannkallaða slembilukku hafa ráðið að þau Kara hafi sett kvöldin á fót. „Við höfðum oft rætt um þetta, og svo æxlaðist það þannig að Jón Mýrdal sem á Húrra sat við hliðina á okkur í kvöldverðarboði og sagðist í óspurðum fréttum hafa pláss og spurði hvort við hefðum hugmynd. Kjálkarnir á okkur duttu beint á gólfið,“ segir Owen og skellir upp úr.

Open Mic-kvöldið verður haldið á sunnudag og þá í sjötta skiptið. Þar hefur kennt ýmissa grasa og fjöldi fólks eignað sér sviðið, svo sem Hugleikur Dagsson, Snorri Helgason, Saga Garðarsdóttir og fleiri. „Maður veit einhvern veginn aldrei hvað gerist, þetta flæðir bara áfram,“ útskýrir Owen og skýtur að; „Vonandi fáum við að vera áfram í húsinu og krossum fingur í von um að Húrra fái að halda velli.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×