Tónlist

Íslensk tónlist í eldlínunni í Slóvakíu

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Tónleikar Bjarkar enduðu með glæsibrag. Fólk stóð agndofa yfir glæsilegum tónleikum sem enduðu með flugeldasýningu.
Tónleikar Bjarkar enduðu með glæsibrag. Fólk stóð agndofa yfir glæsilegum tónleikum sem enduðu með flugeldasýningu. mynd/Ctibor Bachraty
Ísland og íslensk tónlist var í brennidepli á tónlistarhátíðinni Pohoda sem fram fór í Slóvakíu um liðna helgi. Þar komu fram Björk, Ghostigital, Fufanu, Kiasmos og Kippi Kaninus, ásamt fjölda fleiri þekktra listamanna. Um er að ræða eina stærstu indí-tónlistarhátíðina á þessu svæði og sækja hana um 30.000 gestir árlega.

Sigtryggur Baldursson, framkvæmdastjóri ÚTÓN, var á hátíðinni og tók þar meðal annars þátt í tveimur málþingum. „Þetta var virkilega skemmtileg hátíð. Það var mikill fókus á Ísland og íslenska tónlist. Annað málþingið sneri að umræðunni um svokallaðan tónlistarútflutning og hvort skrifstofurnar ætli að bjarga rokkinu. Það voru allir svo áhugasamir um Ísland því við eigum svo mikið af flottu tónlistarfólki sem er að gera góða hluti erlendis,“ segir Sigtryggur um annað málþingið.

Björk kom fram á glæsilegum tónleikum en þeir enduðu með mikilli flugeldasýningu.mynd/ Ctibor Bachraty
Hann segir íslensku listamennina hafa staðið sig með miklum sóma á hátíðinni. „Björk átti mjög flotta tónleika. Hún kemur fram á sínum eigin forsendum og lék mikið af nýju efni en það læddist þó eitt og eitt eldra lag með. Tónleikarnir hennar enduðu með flugeldasýningu,“ segir Sigtryggur um tónleika Bjarkar.

„Allar íslensku hljómsveitirnar áttu mjög flott gigg. Kippi Kaninus spilaði á svokölluð Sunrise-slotti á tónleikunum, sem er klukkan fimm á laugardagsmorgni og aðstandendur hátíðarinnar sögðust aldrei hafa séð jafn marga áhorfendur á þessum tíma á hátíðinni,“ bætir Sigtryggur við.

Á tónleikum Ghostigital reif Sigtryggur fram trommukjuðana og tók lagið með félaga sínum. Fleiri íslenskir trommuleikarar hófu að djamma með Ghostigital því Magnús Trygvason Eliassen, trommari Kippa Kaninus, og Elli Bang úr Fufanu stigu einnig á svið með Sykurmolunum fyrrverandi.

Kippi Kaninus kom fram á svokölluðu Sunrise-slotti en aldrei hafa fleiri gestir verið á tónleikunum á þessum tíma á hátíðinni.mynd/Ctibor Bachraty
Liðsmenn Ghostigital kunna að galdra fram stemningu.mynd/ Ctibor Bachraty
Kiasmos átti stórleik á hátíðinni.mynd/ Ctibor Bachraty
Björk kann svo sannarlega að koma fram á tónleikum.mynd/ Ctibor Bachraty
Ghostigital hélt flotta tónleika á hátíðinni.mynd/ Ctibor Bachraty
Veðrið lék við gesti hátíðarinnar.mynd/ Ctibor Bachraty





Fleiri fréttir

Sjá meira


×