Lífið

Gera skyr og strokka smjör

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Það verður margt við að vera á Árbæjarsafni á morgun og gestir geta meðal annars spreytt sig á skyrgerð.
Það verður margt við að vera á Árbæjarsafni á morgun og gestir geta meðal annars spreytt sig á skyrgerð. Vísir/AndriMarinó
Það verður nóg um að vera á Árbæjarsafni á morgun á viðburðinum Mjólk í mat og ull í fat, en þar mun gestum safnsins verða veitt innsýn inn í horfinn heim og jafnframt gefast kostur á að taka virkan þátt í hinum ýmsu störfum.

„Við ætlum að gera skyr og strokka smjör og leyfa gestunum að spreyta sig á því. Svo verður kona uppi á baðstofulofti sem verður að spinna, eldsmiður í eldsmiðjunni og teymt undir krökkum,“ segir Sigurlaugur Ingólfsson, verkefnastjóri Árbæjarsafns, glaður í bragði en að auki verða ýmsar aðrar uppákomur.

Viðburðurinn er haldinn árlega og hentar allri fjölskyldunni. „Þemað er sem sagt Mjólk í mat og ull í fat, sem var svona viðkvæði áður fyrr, að til þess að vera fullgild eiginkona þurftir þú að kunna að koma ull í fat og mjólk í mat og við erum svona að upphefja þennan hluta af heimilisstörfunum,“ segir hann.

Að sögn Sigurlaugs tekur allt að 40-50 mínútur að strokka smjör og segir hann að börnunum finnist gaman að fylgjast með smjörgerðinni og ekki síður að fá að spreyta sig. „Það fær þau kannski til að hugsa um hvernig þetta var gert í gamla daga. Vörurnar voru ekki til í ísskápunum, enda enginn ísskápur til.“

Það verður nóg við að vera á safninu á morgun því auk sérstakrar dagskrár verða mjaltir venju samkvæmt, kassabílar, leikfangasýning og messa í kirkju Árbæjarsafns klukkan 14.00 þar sem Kristinn Ágúst Friðfinnsson predikar og að venju verður heitt á könnunni í Dillonshúsi.

Safnið verður opnað klukkan 10.00 á morgun og stendur dagskráin fram eftir degi. Inn á safnið kostar 1.400 krónur fyrir fullorðna, en aðgangur er ókeypis fyrir börn undir 18 ára aldri, eldri borgara yfir sjötugu og öryrkja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×