Lífið

Scott á síðasta séns hjá Kardashian-fjölskyldunni

Scott Disick og Kourtney Kardashian hafa ekki átt sjö dagana sæla seinustu vikur. Eftir að myndir birtust af Scott með fyrrverandi kærustu hans, Chloe Bartoli, sleit Kourtney sambandinu við kærastann sinn til níu ára. Þau eiga saman þrjú börn.

Í seinustu viku leyfði Kourtney Scott að koma inn á heimilið þeirra og hitta börnin, en það var í fyrsta skiptið síðan meint framhjáhald átti sér stað. Kourtney telur mikilvægt að Scott sé enn partur af lífi barnanna. Það var svo nema nokkrum dögum síðar að myndir af léttklæddum stelpum fyrir utan heimili Scotts birtust í fjölmiðlum. Ein stúlknanna var í baðsloppnum hans.

Myndbirtingarnar fóru fyrir brjóstið á Kourtney enda er Scott á seinasta séns hjá henni og Kardashian-fjölskyldunni. Scott hefur þó útskýrt hvers vegna stúlkurnar voru á heimili hans. Hann segir að það hafi verið vegna tónlistarmyndbands sem verið var að taka upp og að leikstjóri tónlistarmyndbandsins hafi viljað taka upp heima hjá honum vegna þess hversu útsýnið þar er einstakt.


Tengdar fréttir

Búið spil hjá Kourtney og Scott?

Kourtney Kardashian er sögð hafa hætt með barnsföður sínum Scott Disick um helgina en þau eiga saman þrjú börn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×