Lífið

Bradley Cooper og Irina Shayk íhuga barneignir

Einn vinsælasti leikarinn í Hollywood er tilbúinn til þess að eignast börn.
Einn vinsælasti leikarinn í Hollywood er tilbúinn til þess að eignast börn.
Eitt fallegasta par Hollywood er talið vera í barnahugleiðingum. Þau Bradley Cooper og Irina Shayk hafa verið saman í nokkra mánuði og eru sögð vera yfir sig ástfangin.

Samkvæmt heimildum eru þau tilbúin til þess að taka sambandið skrefinu lengra og eignast saman börn. Bradley er orðinn fertugur og Irina er 29 ára. Þau sáust í fyrsta skiptið saman daginn eftir Met Gala-ballið í New York í maí. Síðan þá hafa þau verið óaðskiljanleg.

Vinir parsins segja að allt gangi eins og í sögu í sambandinu og að þau hafi aldrei verið jafn hamingjusöm. Sagt er að þau séu ekki byrjuð að reyna að eignast börn en það komi reglulega upp í umræðunni og eru þau bæði spennt fyrir komandi tímum í sambandinu.

Þau eru nýlega komin úr öðrum samböndum. Irina Shayk var með fótboltastjörnunni Christiano Ronaldo í fimm ár áður en þau hættu saman í byrjun árs. Bradley var á föstu með bresku fyrirsætunni Suki Waterhouse í meira en ár áður en þau slitu samvistum stuttu eftir Óskarsverðlaunahátíðina í febrúar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×