Lífið

Kassamerkið "litelimetime“ slær í gegn

Gunnhildur Jónsdóttir skrifar
Þökk sé vinsældum Lóu hefur kassamerkið "litelimetime“ slegið í gegn.
Þökk sé vinsældum Lóu hefur kassamerkið "litelimetime“ slegið í gegn. fréttablaðið/valli
Virkir Twitter-notendur hafa eflaust tekið eftir kassamerkinu „litelimetime“ en það var Lóa Björk Björnsdóttir sem kom því af stað. Kassamerkið snýst um sumarbjór frá Vífilfelli sem kom nýverið í sölu og vegna mikilla vinsælda á Twitter er hann nær uppseldur í vínbúðum höfuðborgarsvæðisins. „Ég hef ekki hugmynd um af hverju þetta sprakk svona. Þetta byrjaði allt saman þegar ég var í partíi og tók mynd af öllum vinum mínum með bjórinn og setti þær á Twitter. Nánustu vinirnir byrjuðu strax að taka undir sama kvöld. Svo fann vinur minn upp á kassamerkinu en ég held að það sé einn mikilvægasti hluturinn þegar eitthvað verður vinsælt á netinu í dag,“ segir Lóa.

Eftir að kassamerkið fór á flug og alls konar fólk var byrjað að taka myndir af sér með bjórinn ákvað Lóa að prufa að hafa samband við Vífilfell. „Ég sendi á þau póst og sagði þeim frá þessu. Þau gáfu mér í kjölfarið 96 bjóra og voru spennt að fylgjast með þessu áfram. Þetta á fyrst og fremst að vera fyndið og skemmtilegt. Ég held að ein af ástæðunum fyrir því að fólk sé að taka þátt sé að það skilur þetta ekki alveg enda meikar þetta í raun engan sens.“

Íslenska Twitter-samfélagið er mjög lítið en virkt. „Ég er búin að vera á Twitter frá árinu 2011 og er komin með nokkra fylgjendur og mínir fylgjendur eru með fullt af sínum eigin fylgjendum. Ég veit samt ekki af hverju þetta sprakk svona upp en mér finnst það ótrúlega fyndið. Það er engin uppskrift að því að láta eitthvað slá í gegn á Twitter. Vinir mínir byrjuðu að taka þátt í þessu og ég tvíta reglulega um þetta. Þetta er að hafa einhver áhrif en ég var á LungA í seinustu viku og þá voru mjög margir með Lite Lime með sér og mér fannst það skemmtilegt.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×