Lífið

Eitthvað sem dregur mig á fjöllin

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Íris ásamt dóttur sinni, Rögnu Sif Árnadóttur, að koma úr einni skoðunarferðinni.
Íris ásamt dóttur sinni, Rögnu Sif Árnadóttur, að koma úr einni skoðunarferðinni. Mynd/Úr einkasafni
„Það tók mig mörg ár að gera þessa bók,“ segir Íris Marelsdóttir, sjúkraþjálfari og höfundur bókarinnar Gönguleiðir að Fjallabaki.

„Ég gekk allar leiðirnar oft, fyrst ein, svo með manninum mínum eða vinahópum. Ég reyndi líka að safna sögum sem tengjast landinu sem farið er um, helst sem nýjustum, það er erfiðast.“

Spurð hvort hún skrifi á ferðalögum svarar Íris: „Ég set alla GPS-punkta inn á tæki, tek margar myndir og skrifa bæði á staðnum og um leið og ég kem í hús.“

Fáar konur hafa lagt fyrir sig gerð göngubóka. Íris segir sinn óendanlega áhuga á landinu og útivist ástæðu þess að hún réðist í það.

„Ég fór oft með foreldrum mínum á Fjallabak nyrðra í uppvextinum og er búin að vera lengi í hjálparsveit, eiginmaðurinn líka og öll börnin. Við hjónin vorum landverðir í Þórsmörk í þrjú sumur um tvítugt, sáum um tjaldstæðin í Básum, Endum og Húsadal og fórum um fjöllin að reka fé út fyrir girðingar. Því kunnum við Þórsmörkina og Goðalandið utan að.

Ein myndanna í bókinni er tekin í Stígsverum, Stóra-Súla gnæfir yfir.Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Seinna réði ég mig sem landvörð á Fjallabaki syðra í þrjú sumur og fór með alla krakkana á fjöll, sagði stundum að þau væru í stærsta sandkassa í heimi, það var Mælifellssandurinn. Við vorum í Hvanngili og ég passaði líka skálana í Króki og á Hungurfit. Svo kom bóndinn í sumarfríum.“

Íris ætlar að leysa skálaverðina í Hvanngili af um verslunarmannahelgina. Er hún hætt að vista sig á fjöllum heilu sumrin? „Ég hef dregið úr því en fjöllin toga svo ég sinni skálavörslu í stuttan tíma og tek að mér að leiðsegja hópum um fáfarnar slóðir.“

Bókin Gönguleiðir að Fjallabaki teygir sig dálítið víða, Íris líkir Fjallabaki við sólina sem stafar geislum í allar áttir. Hún bendir á að bókin fari vel í bakpoka og þar sem hún sjálf safni leiðarlýsingum og minningabrotum gæti hún þess að hafa dálka í bókinni fyrir ferðafólk að skrifa í.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×