Heilsu Expó í fyrsta sinn í áratug Gunnhildur Jónsdóttir skrifar 1. ágúst 2015 09:00 Adrian og Vigdís skipuleggja sýninguna á vegum Aðventkirkjunnar. Vísir/Andri Marínó
Vigdís Linda Jack er deildarstjóri heilsulindar hjá Aðventkirkjunni og hefur hún verið að skipuleggja ásamt Adrian Lopez, manni sínum, Heilsu Expó sem verður í gangi í haust. Markmiðið er að leggja áherslu á heilsuna og gefa fólki kost á að fara í alls konar mælingar ókeypis. „Við erum að reyna að fá fólk til þess að taka heilsuna í sínar eigin hendur. Þetta mun heita Heilsu Haust 2015 og verður einu sinni í mánuði frá ágúst til nóvember. Ég held að þessi sýning eigi eftir að gera Íslendingum gott.“ Fyrsta sýningin verður nú á sunnudaginn í Hlíðardalssetrinu í Ölfusi og stendur frá klukkan tvö til fimm. Það er frítt inn og mælingar og upplýsingabæklingar eru fríir fyrir gesti og gangandi. „Það eru 10 ár frá því að sýning í líkingu við þessa hefur verið hér á landi. Þetta er haldið út um allan heim og kominn tími til þess að halda heilsusýningu hér. Þetta verður sett þannig upp að það verða átta básar sem fólk mun labba um. Þeir snerta allir mismunandi viðfangsefni. Einn mun fjalla um næringu, annar um loft og enn annar um vatn og þar fram eftir götunum. Fólk getur farið í mælingu í hverjum bás fyrir sig. Við munum mæla súrefni, blóðþrýsting, blóðsykur og margt fleira.“ Sýningin á sér erlenda fyrirmynd en það eru aðeins íslendingar sem að koma að henni.Aðventkirkjan er í samstarfi við hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og lækna ásamt nokkrum fyrirtækjum sem munu lána ýmis tæki og tól til mælinga. „Við erum búin að þýða alla bæklinga og plaköt á íslensku svo að þetta henti öllum. Við erum að gera þetta að okkar. Við verðum með fjórar sýningar en vonumst til að sjá sem flesta á sunnudaginn. Þetta er aðeins hálftíma bíltúr frá Reykjavík í Ölfus og auðvitað frítt inn.“ Sýningarnar seinna í haust verða í Hörpunni þann 6. september, Ráðhúsinu 4. október og Loftsalnum í Hólshrauni 3 þann 1. nóvember.
Mest lesið Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Lífið Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Lífið Kemur frá Sýrlandi og syngur á íslensku Tónlist Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Lífið Galið að fræðsla um snípinn sé af skornum skammti Lífið Harry og Meghan séu ekki að skilja Lífið „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Lífið Kim vandræðaleg á tónleikum með nýrri eiginkonu Kanye Lífið Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði Lífið Móðir Whitney Houston látin Lífið Fleiri fréttir Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Ragnhildur og Hanna Katrín stefna á flutninga Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Harry og Meghan séu ekki að skilja Galið að fræðsla um snípinn sé af skornum skammti Móðir Whitney Houston látin Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Vann til verðlauna fyrir götubitann Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði Fylgst með tímaskeiði í lífi konu sem greinist með krabbamein Gátu ekki talað saman fyrir syngjandi þjónum „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Fanney Dóra og Aron gáfu syninum nafn Náði að sættast við bróður sinn fyrir andlátið Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og áminning um óöryggi Eins og þruma úr heiðskíru lofti Sláturgerð, Sherry og súkkulaði á Hellu Myndaveisla: Eliza Reid og Ásdís Spanó létu sig ekki vanta í Núllið Covidsmitaður Al Pacino var nær dauða en lífi Dolly gefur 135 milljónir vegna Helenu Með húsaflutninga á heilanum Krakkatían: Ber, forsetar og prinsessur Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til „Ég var heppinn. En ekki hann“ „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Sjá meira