Lífið

Nutella dagurinn er í dag

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Nutella
Nutella Vísir/Getty
Það þekkir hvert einasta mannsbarn súkkulaðiheslihnetusmjörið góða Nutella. Í dag 5. febrúar fögnum við alþjóðlega Nutella deginum.



Á Twitter var hashtagið #WorldNutellaDay vinsælt og deildi fólk þar myndum og uppskriftum af Nutella góðgæti. 

Það má segja að næstum allt bragðist betur með Nutella hvort sem það er banani eða vaffla. Öðrum finnst hreinlega bara best að ná í skeið og skófla í sig beint úr krukkunni.

Fyrir þá sem vilja meiri fjölbreytni en það þá er hægt að finna fjölmargar djúsí uppskriftir hér. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×