Ágústa Eva og Þorvaldur Davíð leika í „draugaþriller“ á Hesteyri Birgir Olgeirsson skrifar 29. október 2015 09:15 Ágústa Eva Erlendsdóttir og Þorvaldur Davíð Kristjánsson munu fara með stór hlutverk í myndinni sem gerist meðal annarrs á Hesteyri. Vísir/Stefán/Valli/Pjetur
Tökur eru á hefjast á kvikmyndinni Ég man þig sem byggð er á samnefndri skáldsögu Yrsu Sigurðardóttur frá árinu 2010. Það eru ZikZak kvikmyndir og Sigurjón Sighvatsson sem framleiða myndina en leikstjóri hennar er Óskar Þór Axelsson sem á að baki kvikmyndina Svartur á leik.Hesteyri er í Hesteyrarfirði í Jökulfjörðum á Vestfjörðum. Það tekur um það bil fjörutíu mínútur að sigla þangað frá Bolungarvíkurkaupstað.Kort/Landakort.isÍ þeirri mynd fór leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson með aðalhlutverkið en hann mun einmitt fara með eitt af aðalhlutverkunum í Ég man þig ásamt Ágústu Evu Erlendsdóttur. Ég man þig segir frá ungu fólki, sem Þorvaldur Davíð og Ágústa Eva leika, sem fer til Hesteyrar í Jökulfjörðum um miðjan vetur til að gera upp hús en fer að gruna að þau séu ekki einu gestirnir í þessu eyðiþorpi. Á sama tíma dregst ungur læknir á Ísafirði inn í rannsókn á sjálfsmorði eldri konu. Tökuteymið er væntanlegt til Vestfjarða í næsta mánuði þar sem haldið verður til Hesteyrar til að festa þessa sögu á filmu. Er það fyrsti áfangi í tökum kvikmyndarinnar en einnig er á dagskránni að taka upp á Ísafirði og svo suður í Reykjavík samkvæmt heimildum Vísis en það mun þó ekki gerast fyrr en á næsta ári.Læknishúsið á Hesteyri þar sem tökuteymi myndarinnar mun meðal annars dvelja á meðan tökum stendur. Vísir/StefánÞeir sem hafa komið til Hesteyrar vita að það er enginn hægðarleikur að hafast þar við svo síðla árs. Þorpið fór í eyði rétt eftir miðja síðustu öld en þar standa níu hús sem notuð eru sem sumarhús. Ekki er gert ráð fyrir dvöl í þeim til lengri tíma yfir vetrarmánuðina og þarf til að mynda að fara þangað með nokkurra daga fyrirvara áður en tökuteymið mætir á staðinn til að kynda upp húsin sem á að dvelja í. Líklegast verða Læknishúsið, þar sem rekin er ferðaþjónusta á sumrin, og Skólinn fyrir valinu. Sagan hennar Yrsu hefur notið töluverðra vinsælda en kvikmyndahandritið vann leikstjórinn sjálfur Óskar Þór ásamt Ottó Borg. Verkefnið hefur fengið 90 milljóna króna styrk frá Kvikmyndamiðstöð Íslands en Óskar sagði í samtali við Fréttablaðið í mars síðastliðnum að myndin yrði „draugaþriller“.
Bíó og sjónvarp Tengdar fréttir Mynd byggð á bók Yrsu verður „draugaþriller“ Óskar Þór Axelsson leikstýrir kvikmynd sem verður unnin úr sögu Yrsu Sigurðardóttur sem ber titilinn Ég man þig. Yrsa segist hafa brosað hringinn er hún las handritið. 17. mars 2015 08:00 Leikstjóri Svartur á leik snýr sér að Ég man þig Óskar Axelsson, leikstjóri Svartur á leik, hefur verið ráðinn til að leikstýra hrollvekju sem byggð verður á metsölubók Yrsu Sigurðardóttur "Ég man þig". Sjálfur var hann skíthræddur við lestur bókarinnar og missti svefn. 14. mars 2012 19:15 Mest lesið Eignuðust stúlku með hjálp staðgöngumóður Lífið Vestfirski hryllingurinn: „Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert“ Bíó og sjónvarp „Auðvitað kom heilmikið rót á mig eftir þetta“ Lífið Fréttatía vikunnar: Þorrinn, gervigreind og háloftin Lífið Segir neytendur rænda við skókaup og bendir þeim á mikilvægan límmiða Lífið Þurfti að gegna fjölmörgum hlutverkum samtímis sem aðstandandi Lífið „Ósmekklegu plastblómin“ ekki frá forsetanum heldur RÚV Lífið Eitt frægasta hús landsins enn á sölu Lífið Fjölgar í „költinu“ hjá Kötu Odds og Þorgerði Lífið Páll Óskar féll í yfirlið og þríkjálkabrotnaði Lífið Fleiri fréttir Vestfirski hryllingurinn: „Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert“ Þau eru tilnefnd fyrir verstu kvikmyndagerðina Sjón og Eggers leiða hesta sína saman í nýjum varúlfahryllingi Deila um gervigreind skekur Hollywood í aðdraganda Óskarsins Sigurjón minnist David Lynch: „Jonni, við verðum að gera eitthvað fyrir Ísland“ Kvikmyndirnar sem beðið er eftir 2025 Embla og Timothée Chalamet glæsileg á dreglinum Krefur Disney um tíu milljarða dala Þakkar fleiru en Demi Moore fyrir langþráð metár Vestfirski hryllingstryllirinn frumsýndur vestanhafs Snerting skaut Deadpool ref fyrir rass 2024 Sjá meira
Mynd byggð á bók Yrsu verður „draugaþriller“ Óskar Þór Axelsson leikstýrir kvikmynd sem verður unnin úr sögu Yrsu Sigurðardóttur sem ber titilinn Ég man þig. Yrsa segist hafa brosað hringinn er hún las handritið. 17. mars 2015 08:00
Leikstjóri Svartur á leik snýr sér að Ég man þig Óskar Axelsson, leikstjóri Svartur á leik, hefur verið ráðinn til að leikstýra hrollvekju sem byggð verður á metsölubók Yrsu Sigurðardóttur "Ég man þig". Sjálfur var hann skíthræddur við lestur bókarinnar og missti svefn. 14. mars 2012 19:15