Helgidómur fyrir ása og náttúruna Linda Blöndal skrifar 5. febrúar 2015 19:30 Hofið sem rís í Öskjuhlíð verður að mestu úr timbri en einnig öðrum náttúrulegum efnum sem rutt verður fyrir byggingunni.
Sólargangurinn verður nýttur til að lýsa inn í bygginguna og gullinsnið er meginstefið í hönnun hennar. Hofið verður staðsett undir Öskjuhlíðinni rétt við göngustíginn, austan við veitingastaðinn Nauthól og Háskólann í Reykjavík, við Menntaveg. Byggingin verður að mestu úr íslensku timbri, 360 fermetrar að stærð og tvö hundruð fermetra aðalsalur mun geta rúmað 250 manns. Félagið á hins vegar rétt á byggingarmagni upp á 850 fermetra sem notað verður síðar. Náttúran í forgrunni „Við notum tvíbreið form, náttúran byggir allt á svona tvíbyggðum formum. Hvelfingin er byggð úr íslensku timbri og byggingin verður fyrir áhrifum af umhverfinu, brekkunni sem hún verður byggð í", sagði Magnús Jensson, arkitekt og ásatrúarmaður. Helgidómurinn sjálfur, aðalhúsið þar sem viðburðir fara fram er timburstrúktúr, segir Magnús. „Helgidómurinn er á einni hæð og að hluta byggður inn í bergið. Það hefur verið ein af uppáhaldshugmyndum okkar að fá svona tímalausa náttúrustemmningu. Með bergveggi á bak við okkur og ná ljósi inn á þá. Þannig að það sé ekkert sem minni mann á nútímann og heldur ekki á víkingatímann eins og mörgum hættir til", sagði Magnús brosandi. Hofið rís á næsta ári Hæst verður húsið um átta metrar. Helgidómurinn rís fyrst og er að hluta niðurgrafin en svo verður tengibygging fyrir félagsheimili sem rís síðar. Framkvæmdir hefjast í mars næstkomandi og náttúruefni á lóðinni verða notuð. Félagar eru orðnir 2500 í ásatrúarfélaginu. Hofið verður fullbúið haustið 2016 og kostnaðurinn um 130 milljónir sem félagið hefur safnað, en Reykjavíkurborg gefur lóðina, um 2500 fermetra. Hamingjuóskir frá Indverskum ásatrúarmönnum Byggingaráformin vekja mikla athygli í erlendis, hingað til lands hafa komið blaðamenn frá sænska ríkisútvarpinu og The Guardian, BBC fjallaði líka um hofið Reuters fréttaveitan sömuleiðis. Síminn hefur ekki stoppað í nokkra daga segir Magnús. „Þetta er eins og flóðbylgja og svo verður hún sennilega bara búin", sagði Magnús en athyglin sem ánægjuleg og samstaða ásatrúarmanna um allan heim einkar skemmtileg. „Það er alveg rosalega gaman hvað heiðni heimurinn stendur saman. Ég hef rekist á síður þar sem Indverjar eru að tala um bræður sína, hina heiðingjana og óska öllum innilega til hamingju með árangurinn og hvað þetta sé allt saman fínt hjá okkur. Maður verður hálf klökkur".
Mest lesið Steindór Andersen er látinn Innlent Röðin í öryggisleitina nær langt inn í brottfararsal Innlent Fjörutíu mínútna röð í einn og hálfan klukkutíma í morgun Innlent Rekstur hestaleigu stöðvaður Innlent Þurfti áfallahjálp þegar flugi til Íslands var hætt Innlent Sjálfstæðisflokkur fengi tæpan þriðjung Innlent Eyjar og sker tilheyra næstu jörð Innlent Búið að loka hringveginum vegna ófærðar Innlent Jónas Ingimundarson er látinn Innlent Sex hópnauðganir á borð lögreglu á árinu Innlent Fleiri fréttir Engin mygla í 200 húsum byggingameistara á Selfossi „Með allra besta móti miðað við árstíma“ Jónas Ingimundarson er látinn Búið að loka hringveginum vegna ófærðar Sex hópnauðganir til rannsóknar og lengri opnunartími sundlauga Von á fallegum, litríkum og kvikum norðurljósum í kvöld Sex hópnauðganir á borð lögreglu á árinu Steindór Andersen er látinn Gæsluvarðhald framlengt yfir konunni Sjálfstæðisflokkur fengi tæpan þriðjung Annað veiðifélag rannsakað vegna ólöglegs fiskeldis Breskur dómur grafi undan tilverurétti trans fólks Mál áfengisnetverslana send aftur til lögreglu Rekstur hestaleigu stöðvaður Fjörutíu mínútna röð í einn og hálfan klukkutíma í morgun Örtröð í Leifsstöð og umdeildur hæstaréttardómur í Bretlandi Yngstu börnin sem hefja innritun í haust fjórtán mánaða Röðin í öryggisleitina nær langt inn í brottfararsal „Besta leiðin upp úr fátækt er að hjálpa fólki að eignast“ Eyjar og sker tilheyra næstu jörð Hvítri Toyotu stolið í Mosfellsbæ Þurfti áfallahjálp þegar flugi til Íslands var hætt Leikhúsþýðingar Vigdísar gefnar út Mikill meirihluti landsmanna vill ekki íslenskan her Sjúkdómsvaldandi bakteríur fylgi óböðuðum ferðamönnum Brýnt að stækka Samgöngusafnið í Skógum „Hann kann allt varðandi þriðju vaktina“ Erlendir vasaþjófar handteknir bæði í höfuðborginni og á Suðurlandi Tveir „galdramenn“ í haldi Uggandi yfir innflutningi: Fleira ungt fólk leitar á Vog Sjá meira