Ríkissaksóknari hefur ákveðið að áfrýja ekki máli sínu til Hæstaréttar gegn Ástu Kristínu Andrésdóttur, hjúkrunarfræðingnum sem ákærður var fyrir manndráp af gáleysi. Ásta var fyrr í mánuðnum sýknuð af ákærunni. Þetta kemur fram á vefsíðu ríkissaksóknara.
Ásta Kristín þakkaði í dag allan þann stuðning sem hún fékk á meðan málinu stóð, og þá sérstaklega síðustu vikurnar. Hún sé mætt aftur til vinnu og að það hafi verið gott að hitta vinnufélagana aftur. Þá verði komandi jól þau fyrstu í þrjú ár sem þetta mál hangi ekki yfir henni.
Henni var gefið að sök að hafa láðst að tæma úr kraga (belg) barkarraufarrennu þegar hún tók sjúklinginn úr öndunarvél og setti talventil á barkarraufarrennuna. Ásta neitaði alltaf sök í málinu.
Um er að ræða fordæmalaust mál, því þetta var í fyrsta sinn sem starfsmaður Landspítalans er ákærður fyrir mál af þessu tagi.