Telja að sprengju hafi verið komið fyrir í farangursrými vélarinnar

Yfirvöld í Egyptalandi og Rússlandi segja hins vegar að of snemmt sé til að fullyrða um hvers vegna vélin brotlenti. 224 létu lífið þegar vélin, sem var á leið frá Sharm el-Sheikh til St. Pétursporgar, brotlenti skömmu eftir flugtak.
Á vef BBC segir þó að þrátt fyrir að rannsakendurnir telji að sprengja hafi grandað vélinni, hafa þeir ekki útilokað að hún hafi brotlent vegna tæknilegra örðugleika. Þeir telja það hins vegar vera ólíklegt. Vígamenn Íslamska ríkisins á Sinaiskaga hafa haldið því fram að þeir hafi grandað vélinni, en þeir hafa ekki sagt hvernig þeir eigi að hafa gert það.
Yfirvöld nokkurra landa, eins og Bretlands, Frakklands og Belgíu, hafa stöðvað flug til Sharm el-Sheikh eftir brotlendinguna á laugardaginn.
Þar ríkir nú mikil örtröð samkvæmt AP fréttaveitunni og leita lögreglumenn í öllum rútum sem koma að flugvellinum. Hundruð farþega bíða í röðum við öryggiseftirlit.
Tengdar fréttir

Gríðarleg sorg í Rússlandi í kjölfar brotlendingar
Hafist var handa við að flytja lík þeirra 224 sem fórust þegar farþegaflugvél rússneska flugfélagsins Kogalymavia hrapaði á laugardaginn á Sínaískaga í Egyptalandi til Sankti Pétursborgar í Rússlandi í gær.

Vélin gæti hafa verið sprengd
Í yfirlýsingu sem skrifstofa Davids Cameron, forsætisráðherra Bretlands, sendi frá sér í gær er skýrt hvers vegna flugferðir breskra ferðalanga til Sínaískaga hafa verið stöðvuð. Sprengja gæti hafa grandað rússnesku flugvélinni og því þurfi að gæta fyllstu varúðar.

Telja mjög líklegt að sprengja hafi grandað rússnesku flugvélinni
Bandarískir og breskir embættismenn segja að sprengja sé líklegasta orsökin fyrir hrapi flugvélar Metrojet yfir Sinai-skaga.

Vélin splundraðist í háloftunum
Sérfræðingar segja of snemmt að segja til um nákvæmlega hvers vegna rússneska flugvélin brotlenti.

Bretar hætta flugi yfir Sínaí
Rússar og Egyptar segja viðbrögð Breta óþarflega harkaleg. Bíða eigi niðurstöðu rannsóknar áður en ályktanir eru dregnar um hrap farþegavélar yfir Sínaískaga um síðustu helgi. 224 fórust með flugvélinni.

Ólafur vottar Pútín samúð þjóðarinnar
Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson hefur sent samúðarkveðjur frá sér og íslensku þjóðinni til Vladimirs Putin forseta Rússlands í kjölfar þess að rússnesk flugvél hrapaði til jarðar yfir Egyptalandi og 224 farþegar týndu lífi.