„Góður dagur, ég var aðeins í vandræðum í annarri lotu en síðasti hringurinn var frábær. Ég vil vinna hér, ég er að horfa á annað sætið í keppni ökumann,“ sagði Rosberg eftir sinn fimmta ráspól í röð.
„Bíllinn var góður í dag, ég fann bara ekki þetta litla sem munaði á okkur Nico. Markmiðið er auðvitað að vinna hér. Ég á eftir að vinna hér, það væri mjög gaman,“ sagði Hamilton.
„Við fengum smá von í annarri lotu en það var greinilegt í þriðju að þeir voru of langt á undan. Keppnin gæti verið áhugaverð á morgun. Við munum gefa allt í keppnina á morgun. Keppnishraði okkar hefur undanfarið verið betri en tímatökuhraðinn,“ sagði Sebastian Vettel sem varð þriðji.

„Þetta var það besta sem við gátum gert. Það er ekkert grín að reyna að elta Ferrari og Mercedes, þeir fara ekki hægt. Það er erfitt að spá fyrir um keppnina á morgun. Uppstilling bílsins var góð í dag,“ sagði Nico Hulkenberg sem ræsir fimmti á morgun.
„Helgin hefur gegnið ágætlega en okkur vantaði aðeins upp á í tímatökunni, við byrjum hvort eð er nánast aftast á morgun. Ég vissi að ég væri að fá víti og því einbeitti ég mér að keppninni. Nýja vélin var ekki fljótari en sú gamla á beinu köflunum,“ sagði Daniel Ricciardo sem ræsir 19. á morgun.
„Ég lenti mikið í umferð í dag. Felipe (Nasr) sá mig kannski ekki en það slapp. Ég mun gera allt sem ég get á morgun, nýta orkuna frá fólkinu og vinna mig upp röðina,“ sagði Felipe Massa sem ræsir áttundi á Williams.
Bein útsending frá keppninni hefst klukkan 15:30 á Stöð 2 Sport á morgun.
Hér fyrir neðan má sjá öll úrslit helgarinnar á gagnvirku brautarkorti.