Lífið

Þriggja ára sektaður fyrir að leggja ólöglega

Drengurinn litli hefur brætt hjörtu netverja.
Drengurinn litli hefur brætt hjörtu netverja.
„Athugið, bifreiðastöður eru bannaðar hér við höfnina. Þessi miskunnarlausi mótorhjólamaður var gómaður hér í gær!“

Þetta skrifar lögreglan í Halifax á Twitter-síðu sína og birtir mynd af lögreglumanni sekta ungan dreng, hinn þriggja ára Declan Tramley, á þríhjóli. Þó var um hrekk að ræða en faðir Declans vildi sýna honum fram á það að lögreglan gæti líka verið skemmtileg. Drengurinn tók vel í hrekkinn og stillti sér niðurlútur fyrir framan myndavélarnar.

Myndin hefur gengið sem eldur í sinu um netheima, en hana má sjá hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×