Kistulagning Dolly fer fram í kvöld Gunnhildur Jónsdóttir skrifar 9. júlí 2015 13:30 Þura Stína hefur unnið á Dolly frá upphafi, síðasta árið sem rekstrarstjóri. Vísir/Andri
Skemmtistaðnum Dolly verður lokað á sunnudag og í tilefni þess ætla aðstandendur að halda kistulagningu í kvöld. Á morgun verður jarðarför og erfidrykkjan er á laugardaginn. Alls munu 20 plötusnúðar þeyta skífum á staðnum um helgina. Húsið verður opnað fyrr en vanalega um helgina og mikið af tilboðum á barnum. Það munu eflaust margir sakna Dolly en hann var opnaður fyrir tæpum þremur árum og hefur alltaf verið vinsæll. Nú er þó komið að endalokum og munu nýir rekstraraðilar taka við og breyta staðnum. Eignarhaldið helst óbreytt. Þura Stína hefur verið rekstrarstjóri Dolly seinasta árið en hefur þó unnið þar frá upphafi. „Maður á auðvitað eftir að sakna Dolly en það sem kemur í framhaldinu í húsinu er mjög spennandi. Það er ekki hægt að segja frá því að svo stöddu. Ég er bara ánægðust með að húsið mun hýsa svipaða starfsemi og er núna í gangi sem er mikill léttir í ljósi þess sem hefur verið í gangi í nágrenninu.“ Það kom fram í vikunni að skemmtistaðirnir Húrra og Gaukurinn munu hugsanlega þurfa að víkja fyrir verslunum fyrir ferðamenn. Húsið sem hýsir Dolly er gamalt en það stendur í Hafnarstrætinu á besta stað. Ýmis starfsemi hefur verið starfrækt í húsinu seinustu ár. Breytingar fara strax af stað eftir lokun Dolly. Jón Gunnar Geirdal er einn af þeim sem koma að rekstri nýrrar starfsemi í húsinu. „Ég veit að þeir eru að stefna á að opna nýja staðinn í ágúst. En við ætlum að nýta helgina vel og við eigum von á fullt af fólki. Það verður tekið vel á móti öllum á þessari kveðjustund og það verður auðvitað frítt inn, eins og það hefur alltaf verið.“
Tengdar fréttir Skemmtistaðurinn Dolly lokar Dolly lokar eftir tvær helgar. 2. júlí 2015 10:04 Mest lesið Þreyttur á stefnumótaöppum: „Hvernig fer ég að því að kynnast fólki?“ Lífið Hafi enn verið hreinn sveinn Lífið Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Lífið „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Lífið Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Lífið Henti listaverkinu í ruslið Menning Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Lífið Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Lífið Harry og Meghan séu ekki að skilja Lífið Eins og þruma úr heiðskíru lofti Lífið Fleiri fréttir Þreyttur á stefnumótaöppum: „Hvernig fer ég að því að kynnast fólki?“ Gullmoli í Giljalandi Hafi enn verið hreinn sveinn Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Harry og Meghan séu ekki að skilja Galið að fræðsla um snípinn sé af skornum skammti Móðir Whitney Houston látin Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Vann til verðlauna fyrir götubitann Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði Fylgst með tímaskeiði í lífi konu sem greinist með krabbamein Gátu ekki talað saman fyrir syngjandi þjónum „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Fanney Dóra og Aron gáfu syninum nafn Náði að sættast við bróður sinn fyrir andlátið Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og áminning um óöryggi Eins og þruma úr heiðskíru lofti Sláturgerð, Sherry og súkkulaði á Hellu Myndaveisla: Eliza Reid og Ásdís Spanó létu sig ekki vanta í Núllið Covidsmitaður Al Pacino var nær dauða en lífi Dolly gefur 135 milljónir vegna Helenu Með húsaflutninga á heilanum Krakkatían: Ber, forsetar og prinsessur Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til „Ég var heppinn. En ekki hann“ „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Sjá meira