Lífið

Nýtt líf eftir að myndlistin tók við

Gunnhildur Jónsdóttir skrifar
Myndlistin lengi verið ástríða Sævar Karl hefur sýnt verk sín víðsvegar um Evrópu.
Myndlistin lengi verið ástríða Sævar Karl hefur sýnt verk sín víðsvegar um Evrópu. Fréttablaðið/GVA
Sævar Karl Ólason, sem var um árabil einn ástsælasti verslunarmaður miðbæjarins, opnar myndlistasýningu í Norr11 í dag.

Þetta er í fyrsta skiptið sem Sævar setur upp sýningu inni í verslun.

„Þetta er engin venjuleg myndlistarsýning. Það er svolítið skemmtilegt að sjá verkin njóta sín eins og þau séu inni á heimili,“ segir Sævar sem nú er búsettur í München í Þýskalandi þar sem hann sinnir myndlistinni af fullum krafti.

„Ég og Erla konan mín seldum verslunina okkar árið 2007 og eftir það sneri ég mér alveg að myndlistinni. Þetta er alveg nýtt líf enda hefur þetta alltaf verið ástríðan mín.“

Sýnir á Íslandi Sævar setti í fyrsta skiptið upp myndlistarsýningu í húsgagnabúð.fréttablaðið/gva
Verk Sævars hafa verið sýnd víðsvegar um Evrópu. „Það er auðvitað mjög skemmtilegt og gríðarlega mikill heiður að fá að sýna verkin mín svona víða. Þau voru á sýningu í Feneyjum í maí og júní og þau verk fara síðan til München í september þar sem þau verða sýnd í Goldberg Studios.“ 

Verkin á nýjustu sýningu Sævars eru öll í abstraktstíl og mjög litrík. „Allt sem ég mála kemur frá hjartanu. Þegar maður er að tjá sig með listinni er ekki hægt að mála eitthvað sem öllum líkar við. Þetta snýst fyrst og fremst um það að mála það sem þig sjálfan langar.“ 


Tengdar fréttir

Sævar Karl með myndlistarsýningu

Sævar Karl Ólason hefur dvalið langdvölum í Þýskalandi, þar sem hann hefur málað náttúrufegurð við München og notið lífsins eftir að hafa selt tískuvöruverslunina Sævar Karl fyrir fjórum árum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×