Ætlar að verða næsta gleraugnamódel Noregs Guðrún Ansnes skrifar 9. júlí 2015 10:30 Aníta hefur mikinn áhuga á fyrirsætustörfum og dauðlangar að verða gleraugnafyrirsæta Noregs 2015. mynd/aðsend „
Mig hefur alltaf langað til að verða módel, en fengið endalaus nei allsstaðar, svo það er mjög gaman að vera í fyrsta sætinu,“ segir Aníta Ingibjörg Davíðsdóttir, sem keppir í norsku gleraugnafyrirsætu keppninni, Årets brillemodell 2015, og vermir þar efsta sætið. Er keppnin haldin í níunda skiptið í ár, og er hún á vegum gleraugnarisans Specsavers Optikk þar í landi, sem heldur úti sjötíu og fjórum gleraugnaverlsunum um gjörvallan Noreg. „Ég var alveg í sjokki þegar ég sá að ég var komin efst,“ útskýrir Aníta Ingibjörg en hana grunar að íslenskar kynsystur hennar hafi haft þar mikil áhrif. „Vinkona mín stakk uppá að ég myndi deila þessu inn í hópinn Beauty tips og sjá hvort þær væru ekki til í að hjálpa mér að komast ofarlega.“ Ekki stóð á viðbrögðum því það næsta sem Aníta vissi var að hún var komin á toppinn. Þess ber að geta að hópurinn inniheldur hátt í þrjátíu þúsund meðlimi. „Nú þarf ég bara að halda mér þar og fá fólk til að kjósa mig, en sú sem er næst á eftir mér hefur tekið rosa kipp undanfarið,“ bendir hún á og er sérlega glöð með árangurinn. Aníta Ingibjörg tók einnig þátt í fyrra en gekk ekki nærrum jafn vel. Er til mikils að vinna, en sigurvegarinn hlýtur titilinn glæsilega, Gleraugnamódel ársins, ásamt myndatöku hjá einhverjum þekktasta ljósmyndara Noregs, Lars Evanger verða myndirnar birtar í hinu nafntogaða tískutímariti Costume. Þá mun gleraugnamódelið ferðast til Tansaníu í Afríku á næsta ári þar sem viðkomandi mun beita sér fyrir að mæla sjón innfæddra og skaffa svo gleraugu fyrir þá sem þurfa. „Það yrði ofboðslega gaman, og mig langar mikið að komast í það. Svo held ég að sigurinn gæti opnað fyrir mér dyr í fyrirsætubransanum, sem mig hefur alltaf langað að vera partur af,“bendir Aníta einlæg á. Munu úrslitin kunngjör þann 11. ágúst næstkomandi svo Aníta óskar eftir stuðningi sem flestra til að þessi draumur verði að veruleika. Til að kjósa Anítu þarf aðeins að smella hér og ýta á hjartað fyrir neðan myndina af henni.
Mest lesið Þreyttur á stefnumótaöppum: „Hvernig fer ég að því að kynnast fólki?“ Lífið Hafi enn verið hreinn sveinn Lífið Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Lífið „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Lífið Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Lífið Henti listaverkinu í ruslið Menning Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Lífið Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Lífið Harry og Meghan séu ekki að skilja Lífið Eins og þruma úr heiðskíru lofti Lífið Fleiri fréttir Þreyttur á stefnumótaöppum: „Hvernig fer ég að því að kynnast fólki?“ Gullmoli í Giljalandi Hafi enn verið hreinn sveinn Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Harry og Meghan séu ekki að skilja Galið að fræðsla um snípinn sé af skornum skammti Móðir Whitney Houston látin Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Vann til verðlauna fyrir götubitann Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði Fylgst með tímaskeiði í lífi konu sem greinist með krabbamein Gátu ekki talað saman fyrir syngjandi þjónum „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Fanney Dóra og Aron gáfu syninum nafn Náði að sættast við bróður sinn fyrir andlátið Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og áminning um óöryggi Eins og þruma úr heiðskíru lofti Sláturgerð, Sherry og súkkulaði á Hellu Myndaveisla: Eliza Reid og Ásdís Spanó létu sig ekki vanta í Núllið Covidsmitaður Al Pacino var nær dauða en lífi Dolly gefur 135 milljónir vegna Helenu Með húsaflutninga á heilanum Krakkatían: Ber, forsetar og prinsessur Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til „Ég var heppinn. En ekki hann“ „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Sjá meira