Lífið

Tom Hanks og Wilson sameinaðir á ný

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Tom Hanks í Cast Away
Tom Hanks í Cast Away Vísir/getty
Það muna allir eftir blakboltanum góða Wilson sem fór með stórt hlutverk í kvikmyndinni Cast Away með Tom Hanks í hlutverki strandaglópsins Chuck Noland, þar sem þeir félagar voru fastir saman á eyðieyju.

Nú geta aðdáendur Wilson og Hanks glaðst á ný því þeir félagar hittust á ný a miðvikudag, fimmtán árum eftir að þeir heilluðu heiminn á hvíta tjaldinu. 

Var Hanks staddur á íshokkíleik hjá New York Rangers þegar hann birtist óvænt á stóra skjánum í salnum og til hans var kastað bolta með andliti Wilson á. Hér fyrir neðan má sjá myndband af endurfundinum. 

Svo gott var sambandið þeirra á milli að þeir voru tilnefndir til verðlauna sem bestu félagarnir á MTV Awards 2001.

ICYMI at the #NYR game last night Tom Hanks and Wilson were finally reunited! #BFF

A video posted by New York Rangers (@nyrangers) on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×