Innlent

Alþingi undirbýr nýjan vef

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Prófanir á lokastigi og stefnt að opnun fyrir lok mánaðarins.
Prófanir á lokastigi og stefnt að opnun fyrir lok mánaðarins. Vísir/Ernir
Prófanir á nýrri vefsíðu Alþingis eru hafnar. Vefurinn er nær óþekkjanlegur frá því sem nú er starfræktur en allt efni af núverandi síðu virðist halda sér á þeirri nýju. Vefurinn hefur fengið talsverða andlitslyftingu en gömlu litirnir sem ríkt hafa á síðunni gefa enn sterkan svip. Nútíminn greindi fyrst frá málinu.

Snjalltækjavæn útgáfa

Ein af grundvallarbreytingunum sem gerðar eru á nýja vefnum er að hann er snjalltækjavænn. Vefurinn skalast niður eftir skjástærð þess tækis sem vefurinn er skoðaður í. Hægt er að skoða nýju útgáfuna á slóðinni beta.althingi.is en vefurinn er ekki fullbúinn.

Vefurinn er hannaður af Hugsmiðjunni og keyrir á vefumsjónarkerfi fyrirtækisins, Eplica. Hugsmiðjan er með nokkurn fjölda opinberra vefja á sínum snærum og má þar meðal annarra nefna Fjársýslu ríkisins, Ríkisskattstjóra og Sjúkratryggingar Íslands.

Vilja bæta vefinn

„Við erum búin að vera að vinna að því um allnokkurt skeið að hressa upp á vefinn hjá okkur. Það er fyrst og fremst stefnt að því að hann verði með snjallvefsviðmóti,“ segir Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis. „Annað markmið hjá okkur að bæta leitina. Allir segja að það sé mikið efni á þessum vef og mikið að hafa þar en við höfum aðeins fengið kvartanir um leitina.“

„Svo höfum við það að markmiði að bæta aðgengi að öllum upplýsingum sem við höfum. Við reynum að hafa allt uppi á borðinu hjá okkur, eins og hægt er,“ segir hann og nefnir að unnið hafi verið að því að auka aðgengi að þeim upplýsingum sem eru til í þinginu og nefnir þar til að mynda gögn frá nefndum þingsins.

„Þetta er komið mjög langt og það standa nú yfir innanhúsprófanir,“ segir Helgi en verið er að greiða úr síðustu hnútunum. Hann segir að stefnt sé að því að opna nýja vefinn á næstu vikum. „Þetta verður einfaldara og beittara,“ segir Helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×