Lífið

Grammy verðlaunin: Eftirminnileg augnablik

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Beyoncé og Jay Z slógu í gegn í fyrra.
Beyoncé og Jay Z slógu í gegn í fyrra. Vísir/Getty
Grammy verðlaunin verða afhend í 57. sinn á sunnudag.Sam Smith, Beyoncé og Pharrel Williams eru með flestar tilnefningar, öll með sex. Iggy Azalea, Jay Z, Sia, Usher og Jack White eru meðal þeirra sem fylgja fast á eftir með fimm tilnefningar.

Á hátíðinni koma fram meðal annarra Katy Perry, Ed Sheeran, Sam Smith,AC/DC, Tom Jones, Rihanna, Paul McCartney og John Legend.

Grammy hátíðin hefur oft verið ansi skrautleg og því við hæfi að rifja upp nokkur eftirminnileg augnablik.

Beyoncé og Tina TurnerVísir
Drottningarnar Beyoncé og Tina Turner tóku Proud Mary á Grammy verðlaununum 2008. Ógleymanlegt.

Kanye WestVísir
Þegar Kanye West ákvað að klæða sig eins og Victoria's Secret engill árið 2005.

Eminem og Elton JohnVísir
Elton John tók lagið Stan með rapparanum Eminem á Grammy verðlaununum 2001.

Lady GagaVísir
Nei það gleymir enginn þegar Lady Gaga lét bera sig inn í eggi. Þvílík innkoma.

Jennifer LopezVísir
Það gleymir enginn Versace kjólnum hennar Jennifer Lopez árið 2000. Þetta verður ekki toppað.

PinkVísir
Söngkonan Pink sveif syngjandi yfir salinn ári 2010. Það urðu allir lofthræddir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×