Lífið

Kvikmyndahátíð framhaldsskólanna: Draugagangur í húsi doktor King

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Kvikmyndahátíð framhaldsskólanna fer fram um helgina. Þann sjöunda febrúar verður besta stuttmynd framhaldsskólanema verðlaunuð.

Fjölbrautaskóli Snæfellinga sendir frá sér myndina The Haunting of King House.


Leikarar: Steinþór Stefánsson, Logi Sigursveinsson, Vignir Snær Stefánsson, Bangsi og Logi Sigursveinsson.

Leikstjórn, handrit, myndataka, klipping og hljoð: Logi Sigursveinsson, Steinþór Stefánsson, Vignir Snær Stefánsson, Andri Viðar Kristmannsson og Gunnar Bjarki Baldvinsson

Um myndina: Hús doktor King er ekki eins saklaust og haldið var í fyrstu.





Kvikmyndahátíð framhaldsskólannna er skipulögð af hópi nemenda í hátíðaráfanga sem kenndur er á nýsköpunar- og listabraut í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Hátíðarstjóri er Benedikt Snær Gylfason nemi, en þetta er frumraun hans sem hátíðarstjóri.

Undirbúningur hófst í haust og hafa 25 stuttmyndir frá framhaldsskólanemum um allt land verið sendar inn.

Heiðursgestur hátíðarinnar er leikstjórinn Ragnar Bragason. Ragnar er þaulreyndur leikstjóri en ferill hans spannar sjö kvikmyndir í fullri lengd, sex þáttaseríur fyrir sjónvarp sem seldar hafa verið til sýninga víðsvegar í heiminu og tvær leiksýningar fyrir Borgarleikhúsið. Hann hóf kvikmyndaferil sinn í Fjölbrautaskólanum við Ármúla þar sem hann leikstýrði sinni fyrstu stuttmynd.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×