Lífið

Dagur prentiðnaðar haldinn í fyrsta sinn

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Georg Páll Skúlason fer fyrir Félagi bókagerðarmanna.
Georg Páll Skúlason fer fyrir Félagi bókagerðarmanna. vísir/stefán
Dagur íslensks prentiðnaðar er haldinn í fyrsta skipti í dag. Að baki honum standa Félag bókagerðarmanna, Samtök iðnaðarins og Iðan fræðslusetur.

„Við reynum að höfða til þeirra sem starfa í prentiðnaðinum og prenttengdum greinum,“ segir Georg Páll Skúlason, formaður Félags íslenska bókagerðarmanna.

Dagskráin fer fram í húsi Iðu í Vatnagörðum 20. Á milli klukkan 15 og 18 verður boðið upp á nítján stutta fyrirlestra þar sem kennir ýmissa grasa.

Hægt er að sækja fyrirlestur um WordPress-vefi, hvernig skal gera smáforrit á tuttugu mínútum, læra á tæknina bakvið UV-prentun og fjallað verður um hvað sé heitt í hönnun. Að fyrirlestrum loknum verður boðið upp á léttar veitingar, lifandi tónlist og skemmtidagskrá frá uppistandaranum Ara Eldjárn.

„Þetta er í fyrsta skipti sem við höldum þennan dag með þessu nafni,“ segir Georg en áður hefur verið boðið upp á svokallaða Prentmessu. Georg telur líklegt að ef vel tekst til verði unnið að því að gera hann að árlegum viðburði. Hann segir að bransinn telji um 800 manns og hann vonar að um fjórðungur þeirra mæti.

„Við höfum rætt við fyrirtækin um að veita sveigjanleika til að gefa starfsfólki möguleika á að mæta og það er vonandi að sem flestir geri það.“

Umhverfið tengt prentmiðlum hefur tekið miklum breytingum með nýrri tækni. Georg segir það vera í stöðugri mótun.

„Prentiðnaðurinn og grafíkin flæðir með nýjustu tækni. Við reynum að eyrnamerkja þetta sem minnst og opna þetta helst upp á gátt.“

Hann bendir á að margir miðlar komi sínu efni frá sér samtímis á prenti og vef. Í því felst mikið samspil og framtíðin liggur þar.

„Í breytingunum liggja tækifærin og prentið mun aðlagast þeim. Það hefur það gert og mun halda áfram að gera. Þetta er alls ekki fyrsta og alls ekki síðasta byltingin sem prentheimurinn mun ganga í gegnum,“ segir Georg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×