Lífið

Hafliði fæddist án fóta en er orðinn að fótboltastrák

Bjarki Ármannsson skrifar
"Ekki ákveða hvað börnin okkar geta og geta ekki,“ skrifar Ebba Guðný Guðmundsdóttir.
"Ekki ákveða hvað börnin okkar geta og geta ekki,“ skrifar Ebba Guðný Guðmundsdóttir. Vísir/Ernir
„The moral of the story ... ekki ákveða hvað börnin okkar geta og geta ekki, hverju þau hafa áhuga á, hverju þau vilja. Þau finna út úr því sjálf, allt er hægt þegar áhugi og vilji eru til staðar.“

Þetta skrifar Ebba Guðný Guðmundsdóttir matreiðslukona á Facebook í gær við myndband af syni hennar, Hafliða Hafþórssyni, að spila knattspyrnu með félögum sínum. Hafliði er níu ára en hann fæddist fótalaus og notast við stoðtækjafætur frá Össuri. Ebba rifjar það upp í færslu sinni að hún og maður hennar grínuðust með það á meðgöngunni að þau ættu von á „fótboltastrák,“ áður en þau komust að því að sonur þeirra myndi fæðast án fóta.

„Þegar sónarsérfræðingurinn sagði við mig og Hadda að við ættum von á dreng hvíslaði Haddi að mér „fótboltastrákur“ og brosti,“ skrifar Ebba Guðný. „Ég brosti líka. Örfáum mínútum síðar fengum við að vita að engir fætur sæjust – drengurinn okkar var ekki með neina fætur. Við töluðum aldrei aftur um fótboltastrákinn.“

Eins og sést í myndbandinu átti Hafliði svo sannarlega eftir að verða að fótboltastrák. Hann gekkst undir aðgerð ellefu mánaða gamall þar sem vansköpuðu fætur hans voru fjarlægðir, en saga hans var sögð í Íslandi í dag árið 2011.





Rúmum mánuði síðan fékk Hafliði svo sína fyrstu gervifætur og hefur fjölskyldan ekki litið um öxl síðan.

„Í dag er Hafliði níu ára og hefur mestan áhuga á fótbolta,“ skrifar Ebba. „Hann elskar fótbolta, veit allt um fótbolta, horfir á fótbolta og spilar fótbolta eins mikið og hann getur. Þannig að eftir allt saman er hann orðinn fótboltastrákur eins og pabbi hans sagði í sónarnum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.