Þolendur myglusvepps bera einir kostnaðinn Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 24. september 2015 07:00 Mygla
Á Facebook er hópur sem kallast Myglusveppur – þolendur en þar eru á sjötta hundrað manns sem eiga það sameiginlegt að hafa barist við myglusvepp og afleiðingar hans. Blaðamaður setti upp könnun í hópnum um fjárhagslegt tap vegna myglusvepps. Áttatíu manns svöruðu könnuninni og höfðu allir orðið fyrir einhvers konar fjárhagslegu tjóni vegna myglusvepps. Stærsti hluti hópsins sem svaraði hefur þurft að borga fyrir framkvæmdir á fasteign, misst innbú sitt, þurft að losa sig við fatnað, orðið fyrir atvinnumissi og tapað heilsu sinni vegna myglusvepps. Jafnvel þótt fólk sé með innbústryggingu, heimilistryggingu og sjúkratryggingu þá eiga þær ekki við þegar kemur að myglusvepp. Myglusveppur kemur upp á löngum tíma vegna viðvarandi leka eða raka. Ekki er um skyndilegt vatnstjón að ræða sem er almennt bætt með tryggingum. Þegar fólk verður mjög veikt af völdum myglusvepps myndar það slíkt óþol við sveppnum að það getur ekki verið nálægt hlutum sem hafa fengið á sig sveppinn eða inni í húsnæði þar sem vottur af myglusvepp er. Því eru mörg dæmi um að fólk flytji úr húsnæði með myglusvepp en heilsan lagast ekki vegna húsgagna, fatnaðar og annarra hluta sem voru í gamla húsnæðinu og eru þakin sveppagróum sem illmögulegt er að hreinsa úr hlutum. Þannig að fyrir utan dýrar rannsóknir, framkvæmdir og rask sem getur skapast þegar myglusveppur kemur upp þá þurfa þeir sem verst hafa orðið úti að losa sig við öll húsgögn, fatnað og persónulega muni með tilheyrandi kostnaði.Guðbjörg Þóra, maðurinn hennar og þrjú börn þurftu að losa sig við nær allar sínar eigur þegar þau fluttu út úr myglusveppasýktu húsnæði.Eins og að lenda í bruna en án skilnings Guðbjörg Þóra Ingimarsdóttir og fjölskylda hennar voru lengi að átta sig á því að myglusveppur væri að valda langvarandi heilsubresti hjá öllum fjölskyldumeðlimum. Heilsan lagaðist strax við að flytja út úr húsnæðinu síðastliðið sumar en ofnæmiskerfi Guðbjargar er orðið svo lélegt að hún getur ekki komið nálægt gömlu húsgögnunum eða verið inni í húsnæði sem vottur af myglusvepp er í. „Við hentum næstum öllum okkar eigum og við fáum það ekki bætt úr tryggingum. Það er enginn bótaréttur þegar kemur að myglusvepp sem sýnir það og sannar að maður er ekki að henda dótinu sínu til að svíkja út úr tryggingum,“ segir Guðbjörg. Fjölskyldan henti húsgögnum, sængum og fötum. Í raun öllu nema mjög dýrum tækjum og tölvubúnaði. Þau dauðhreinsuðu þá hluti og ætla að taka eitt og eitt inn í nýju íbúðina sem þau eru í og athuga hvort það verði í lagi. „Svo pakkaði ég þessu dýrmætasta í kassa. Myndum af börnunum og öðru ómetanlegu dóti og þori kannski að athuga með það eftir nokkur ár. Það er sárast að hugsa til þess að þessir hlutir séu mögulega glataðir. Hitt er hægt að endurnýja.“ Guðbjörg segir þetta hafa verið eins og að lenda í bruna, nema án skilnings og samúðar frá samfélaginu og án þess að fá tjónið bætt. „Við mættum svakalega miklu skilningsleysi og fordómum. Fólki fannst við klikkuð og sagði okkur að henda þessu bara í þvottavél. Enda veit fólk lítið um myglusvepp og hversu þrálátur hann er þegar hann hefur komist í snertingu við hluti. Þegar maður hefur upplifað að vera heilsulaus til lengri tíma vegna myglusvepps tekur maður heilsuna fram yfir veraldlegar eigur. Okkur datt ekki í hug að taka sénsinn á að vera með eitraða hluti inni hjá okkur og verða veik aftur. Enda ráðlagði fólk með slæma reynslu af þrálátum veikindum vegna sveppasýkts innbús okkur að henda öllu.“Fjölskyldan þurfti meðal annars að henda:Öllum fötum og skóm, sófasetti og borði, fjórum rúmum og rúmfatnaði, dóti barnanna, leikjatölvum og leikjum, prentara, myndavélum, hillum og kommóðum, náttborði, skrifborði, flestum bókum, öllu eldhúsdóti, myndum og römmum, stofustássi, snyrtidóti og töskum.Engin dómsmál vegna innbúsDæmi eru um dómsmál vegna fasteignakaupa og myglusvepps sem hafa farið á báða vegu. En í dómasafni héraðsdóms og Hæstaréttar finnast engin sem fjalla um myglusvepp og ábyrgð leigusala eða tryggingafélaga. Hólmsteinn Brekkan, framkvæmdastjóri Leigjendasamtakanna, segir marga leita til hans vegna innbústjóns af völdum myglusvepps. Myglan er þá talin til komin vegna viðhaldsskorts leigusala eða í kjölfar ófullnægjandi viðgerðar eftir vatnstjón. Málin ættu lögum samkvæmt að vera bótaskyld en Hólmsteinn segir fólk almennt ekki treysta sér í einkamál. „Startkostnaður er að minnsta kosti 600.000 krónur og sönnunarbyrði er mikil,“ segir hann. Vitað er um mál í undirbúningi gegn Félagsbústöðum vegna myglusvepps og skemmda á innbúi. Ekki hefur fengist staðfest hversu mörg þau eru.
Tengdar fréttir Leigusalar fela myglusvepp Fjölmörg dæmi eru um leigjendur sem hrekjast út úr íbúðum vegna veikinda af völdum myglusvepps. Framkvæmdastjóri Leigusamtakanna segir sárlega skorta eftirlit með leigumarkaðnum. 11. september 2015 07:00 Ráðlagt að segja ekki frá myglusvepp Leigusala kom á óvart hve litla þekkingu hagsmunaaðilar fasteignaeigenda hafa á myglusvepp og var henni ráðlagt að leigja út íbúð án þess að segja frá myglusveppum. 14. september 2015 07:00 Mest lesið Sakleysi dætranna hafi gufað upp Innlent Sindri grunaður um fjárdrátt Innlent Trump ætlar að skattleggja Pútín svo hann hætti stríðsrekstri í Úkraínu Erlent Ærandi þögn og klukkan tifar Innlent Biskup og prestar lýsa yfir stuðningi við Budde og boðskap hennar Innlent Leyfið heyrir sögunni til Innlent Þórdís Kolbrún gefur ekki kost á sér Innlent Glansmyndir á samfélagsmiðlum valdi mikilli streitu Innlent „Þau eru bara fyrir“ Innlent Fleiri Kimdátar væntanlegir í Kúrsk: „Það er bara áfram og áfram“ Erlent Fleiri fréttir Þórdís Kolbrún gefur ekki kost á sér Foreldrar stefna Kennarasambandinu vegna verkfallsaðgerða „Draumahúsið“ sem hefði getað sparað stórfé Sindri grunaður um fjárdrátt Hælisleitendur fá ekki inni í JL eftir allt saman Ærandi þögn og klukkan tifar Halla vill leiða VR áfram Strætó fær sérakrein á Kringlumýrarbraut Leyfið heyrir sögunni til Sakleysi dætranna hafi gufað upp Biskup og prestar lýsa yfir stuðningi við Budde og boðskap hennar Glansmyndir á samfélagsmiðlum valdi mikilli streitu Segir Grænlendinga yndislega, harðduglega og útsjónarsama „Þau eru bara fyrir“ „Óvandaðir falsfréttamiðlar koma fram við fólk eins og fífl“ Hvammsvirkjun uppfylli ekki skilyrði Óhugnanlegt að hugsa til þess ef allt hefði ekki farið á besta veg Opið málþing Læknadaga: Næring allra, sérstaklega barna - fjárfesting fyrir framtíðina „Erfiðara að komast að rót vandans með þessum krökkum“ Efnaslys varð í grunnskóla í Reykjanesbæ Engar töfralausnir við hegðunarvanda barna Minkurinn dó vegna fuglaflensu Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn bjartsýnir eftir fund dagsins Af þingi í skólamál á Austurlandi Hafi ekki verið pínd dögum saman heldur vaknað með áverkana Efast um niðurstöðu héraðsdóms í Hvammsvirkjunarmáli Björn Þorláks segir sig úr Flokki fólksins Hætta rannsókn á skipverjunum á Hugin „Ég held að það sé full ástæða til að óttast“ Ymur hafi stungið móður sína minnst 22 sinnum Sjá meira
Leigusalar fela myglusvepp Fjölmörg dæmi eru um leigjendur sem hrekjast út úr íbúðum vegna veikinda af völdum myglusvepps. Framkvæmdastjóri Leigusamtakanna segir sárlega skorta eftirlit með leigumarkaðnum. 11. september 2015 07:00
Ráðlagt að segja ekki frá myglusvepp Leigusala kom á óvart hve litla þekkingu hagsmunaaðilar fasteignaeigenda hafa á myglusvepp og var henni ráðlagt að leigja út íbúð án þess að segja frá myglusveppum. 14. september 2015 07:00