Alonso og Bottas með í Malasíu

Alonso lenti á varnarvegg á æfingum fyrir tímabilið og er enn óvíst hvað olli því óhappi. Ýmsar samsæriskenningar eru á lofti eins og iðulega þegar eitthvað er óljóst í Formúlu 1. EInhverjir telja að Alonso hafi misst meðvitund áður en hann lenti á varnarveggnum en aðrir telja hann hafa fengið raflost úr rafkerfi bílsins. Ljóst er að ólíklegt er að um einföld ökumannsmistök sé að ræða enda er Alonso af mörgum talinn einn besti ökumaður sögunnar.
Alonso er samkvæmt heimasíðu McLaren liðsins reiðubúinn til þátttöku eftir að hafa setið hjá í fyrstu keppni tímabilsins. Eina formsatriðið sem á eftir að uppfylla er læknisskoðun hjá lækni keppninnar í Malasíu.
Bottas tók þátt í tímatökunni í Ástralíu en varð þar fyrir bakmeiðslum sem komu í veg fyrir þátttöku hans í keppninni. Hann stóðst ekki flóttaprófun. Honum tókst ekki að komast upp úr ökumannsklefanum innan tilsetts tíma. FIA veitti honum því ekki heimild til að keppa en nú ætlar Bottas að gera aðra tilraun.
Bottas hefur fengið meðhöndlun við bakverkjunum og telur sig reiðubúinn í keppni. Væntanlega verður hann því um borð í Williams bílnum um helgina á Sepang brautinni í Malasíu.
Tengdar fréttir

Sjáðu allt það helsta úr fyrstu Formúlu 1 keppni tímabilsins
Lewis Hamilton á Mercedes var hlutskarpastur í fyrstu keppni á Formúlu 1 tímabilinu, en keppnin fór fram í Ástralíu á morgun. 365 hefur klippt allt það helsta saman og það má sjá í meðfylgjandi myndskeiði.

Bottas vonandi klár fyrir Malasíu
Valtteri Bottas, ökumaður Williams liðsins í Formúlu 1 hlaut bakmeiðsl í tímatökunni fyrir ástralska kappaksturinn um síðustu helgi.

Enginn Þýskalandskappakstur
Nú hefur kappakstur í Þýskalandi verið formlega þurrkaður út af keppnisdagatali Formúlu 1 í ár.

Manor með til Melbourne
Manor liðið hefur staðfest að 2015 bíll liðsins sé reiðubúinn og mæti í fyrstu keppni tímabilsins í Ástralíu eftir 10 daga.

Bílskúrinn: Mercedes á móti rest
Fyrsta keppnin á Formúlu 1 tímabilinu fór fram um nýliðna helgi. Helgin í heild sinni svaraði sumum spurningum en vakti aðrar.

Alonso ekki með í Ástralíu
Fernando Alonso ökumaður McLaren liðsins hefur ákveðið að taka ekki þátt í ástralska kappakstrinum.