Fimm af tíu fulltrúum Evrópu frá Íslandi Bjarki Ármannsson skrifar 31. maí 2015 18:08 Árangurinn glæsilegur hjá okkar fólki. Myndir/Facebook-síða CrossFitGames
Fjórir af þeim fimm keppendum sem komust áfram úr Meridian-undankeppninni í Krossfit í kvennaflokki eru Íslendingar. Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir, Katrín Tanja Davíðsdóttir og Annie Mist Þórisdóttir skipa þrjú efstu sætin og Þuríður Erla Helgadóttir það fimmta. Íslensku keppendurnir fjórir hafa því tryggt sér þátttökurétt á heimsleikunum í Krossfit sem fara fram í Kalíforníu. Meridian-undankeppnin, sem haldin er í Kaupmannahöfn, er fyrir þátttakendur frá Evrópu og Afríku en aðeins fimm konur og fimm karlar komast áfram á heimsleikana. Björgvin Karl Guðmundsson tryggði sér jafnframt þátttökurétt í karlaflokki en hann lenti í öðru sæti á eftir Finnanum Jonne Koski. Þá lenti eina íslenska liðið í undankeppnninni, CrossFit Reykjavík, í þriðja sæti í flokki liða og er einnig á leið á mótið.Í skýrslunni um niðurstöður undankeppninnar á heimasíðu Krossfit-leikanna er vakin athygli á þessari einokun íslenskra kvenna í ár. "Call it the dominance of the 'Dóttirs," segir á vefsíðunni og er þar vísað til eftirnafna íslensku keppendanna, sem útlendingum þykja sennilega glettilega lík.
Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti Salah sló þrjú met í dag Fótbolti Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Golf Wagner með slitið krossband og úr leik út tímabilið Körfubolti Dagskráin í dag: Það er pílan Sport „Við vorum taugaóstyrkir“ Fótbolti Cullen stormaði út af blaðamannafundi Sport Fleiri fréttir Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Dagskráin í dag: Það er pílan Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Wagner með slitið krossband og úr leik út tímabilið „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Cullen stormaði út af blaðamannafundi White og Littler mætast í 16-manna úrslitum Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Martin og félagar burstuðu botnslaginn Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Fimm töp í röð hjá Elvari og félögum Viktor Gísli góður þegar Wisla Plock fór á toppinn Negla Elínar Klöru eitt af flottustu mörkum EM Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Sektaður fyrir að vera í sitthvorum skónum Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Tapsár Tyson Fury: „Hann fékk jólagjöfina sína of snemma“ Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Luke Littler grét eftir leik Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Sjá meira