Sport

Íþróttakappar í Vegas: Danni er að bola yfir sig

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Vísir hitti handboltakappa, fótboltamann og rótara sem eru mættir til að styðja Gunnar Nelson í Las Vegas.

Handboltakapparnir Einar Ingi Hrafnsson og Daníel Berg Grétarsson, gamla fótboltahetjan Hafþór Ægir Vilhjálmsson og rótarinn Bjarki Stefánsson eru á meðal fárra Íslendinga sem eru mættir til Las Vegas.

Þeir eru að njóta reynslunnar í botn. Fóru á blaðamannafundinn og vigtunina og hafa einnig kíkt á UFC Expo og hitt stjörnur úr UFC.

Strákarnir eru hæstánægðir með tímann í Vegas. Við ræddum við þá um lífið í Vegas og má sjá viðtalið hér að ofan.

Vísir er í Las Vegas og fylgir Gunnari Nelson eftir alla vikuna. Ekki missa af neinu. Like-aðu okkur á Facebook, eltu okkur á Twitter og skyggnstu bakvið tjöldin á Snapchat (sport365). Tryggðu þér svo áskrift á 365.is.

MMA

Tengdar fréttir

Forseti UFC: Gunnar getur farið alla leið

Dana White segir ekkert annað hafa komið til greina en að vera með bardaga Gunnars sem einn af aðalbardögunum á stærsta bardagakvöldi í sögu UFC.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×